Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Qupperneq 147

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Qupperneq 147
RITDÓMAR enda. Hann fer að tala um sjálfan sig í þá- tíð og bæta orðinu „sálugi“ aftan við nafn sitt en slíkt vekur einungis hlátur. Hann verður smámsaman fjarrænn, föl- ur og fár og tekur sífellt minni þátt í fjöl- skyldulífinu, kaupir sérhannað heilsu- rúm og svört gluggatjöld. Og enda þótt fjölskyldan sé honum ennþá kær, hann geti lesið fyrir börnin á kvöldin og sofið hjá eiginkonunni, tekur að kvikna í hon- um löngun í aðrar konur og hann stígur fyrsta skrefið út úr hjónabandinu með ungri ekkju sem hann tekur að sér að mála íbúð fyrir. Hálfdan er raunar umvafinn kven- fólki út alla söguna sem allar bera til hans hlýjan hug og eru boðnar og búnar að hjálpa honum úr ógöngunum, móðir, eiginkona, samstarfskona og fyrrverandi kærasta. Drúsilla miðill sker sig að vísu úr þessum kvennahópi og vafasamt hvern hug hún ber til Hálfdans. Há- punktinum í samskiptum við hitt kynið nær hann þó ekki fyrr en í „næsta lífi“ þar sem hann upplifir sælu og fullnægju og finnur loksins sjálfan sig með bláó- kunnugri stúlku. Blekkingarleikur Það er athyglisvert að skoða hvernig höf- undur beitir ýmsum brögðum til þess að láta lesendur halda að til sé einhver „jarðbundin skýring" á ástandi Hálf- dans. Þetta afvegaleiðir lesendur nokkuð því á meðan þeir eru að leita sennileg- ustu skýringarinnar og bíða þess að álög- unum linni er Hálfdan að úthugsa leið til að sannfæra umhverfið, og þar með les- endur, endanlega um dauða sinn. Þetta skapar skemmtilega spennu og tog- streitu í frásögninni framan af þar sem engin leið er að sjá hvert stefnir. Uppruni Hálfdans er til dæmis dálítið grunsamlegur og gefur tilefni til efa- semda um að hann hafi nokkru sinni verið jafn lifandi og af er látið. Hann er fæddur tvíburi en tvíburabróðir hans lést við fæðingu. Þetta veldur honum talsverðu hugarangri og móðir hans bendir honum á þann möguleika til skýringar á líðan hans að hinn látni tví- burabróðir sé að kalla hann til sín. Gælu- nafhið „Hálfi“ sem móðir hans notar undirstrikar einnig að Hálfdan Ferg- usson er varla nema hálfur maður strax frá upphafi fyrst „hinn helmingurinn“ lést við fæðingu og til að kóróna þessar óljósu forsendur lífs hans er hann fæddur hlaupársbarn og lýtur þar með ekki alveg sömu tímamælingum og aðrir. Hann leitar einnig skýringar á ástandi sínu hjá Drúsillu miðli sem tjáir honum að gamall bóndi sé að lifa í gegnum hann, en bóndi þessi dó sama dag og Hálfdan fór á uppboðið í Tollvöru- geymslunni þar sem hann sannfærðist um dauða sinn. Hálfdan er þó fullur efa- semda og kaupir ekki svona einfalda skýringu enda er hann viss um að allir sem hann ræðir við stundi blekkingar og séu í samsæri gegn sér. Lesandinn er aft- ur á móti alveg tilbúinn að gangast inn á skýringu miðilsins því þegar dauða- sannfæringin var að læsa sig í hugskot Hálfdans stóð hann einmitt við hlið dul- arfullrar kvenpersónu, sem síðar kom í ljós að var þessi sami miðill og gæti hún því vel hafa lagt á hann þessi álög. En hér er ekkert eins og það sýnist vera, blekk- ingarleikurinn með Hálfdan og lesand- ann heldur áfram til þrautar. Það er svo ekki fyrr en Hálfdan kemst á samning við „myrkraöflin" í líki þeirra Natans og Ormars sem eitthvað raun- hæft fer að gerast í hans málum. Hafi andrúmsloft sögunnar verið þrúgandi og píslargangan endalaus magnast spennan heldur betur eftir að þeir koma til skjalanna og ný von kviknar innra með Hálfdani. Sagan tekur nýja stefnu og þegar Hálfdan gengur á fund „myrkraaflanna" í því skyni að leita út- gönguleiðar úr prísundinni er augljóst að hann er stiginn niður til heljar: Hveragufur mögnuðust í vægu ffosti dagsins og stillunni á leiðinni að litla TMM 1998:3 www.mm.is 145
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152
Qupperneq 153
Qupperneq 154
Qupperneq 155
Qupperneq 156
Qupperneq 157
Qupperneq 158
Qupperneq 159
Qupperneq 160
Qupperneq 161
Qupperneq 162
Qupperneq 163
Qupperneq 164

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.