Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Page 149

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Page 149
RITDÓMAR öldu sögunnar og „brandararnir“, sem sögumaður er óspar á að láta fjúka, gegna sama hlutverki. Grínið er á yfir- borðinu en hrollvekjan og skelfingin undir niðri. Þarna er leikið á hárfínum mörkum án þess að farið sé yfir strikið og lesandi er stöðugt minntur á harmleik- inn. I sögunni er sífellt leikið tveimur skjöldum og jafnvel undir lokin þegar lesandi heldur að lausnin sé fúllgerð renna enn á hann tvær grímur þegar japönsk stúlka rennir hýru auga til Dannys Deadman í „gervi“ Drúsillu Kjartansdóttur miðils. Lesandi situr eftir í spurn og Hálfdan Fergusson er ef til vill litlu nær um það hvað bíður hans, hvort hann sé lifandi eða dauður og hvort písl- argangan hafi haft einhvern tilgang eða hvort „örlaganornin" Drúsilla hafi bara verið að spila með hann. Steinunni Sigurðardóttur tekst í Hanami að gera minnisstæða skáldsögu úr fjarstæðukenndu efni. Sagan er óvenjuleg, ff umleg og full af pínlegum gáska þar sem skopast er með jafn grafalvarlegt mál og dauðann og lesandi er gerður að sama leiksoppi og Hálfdan Fergusson. Söguefn- ið er sígilt og einkennileg örlög söguper- sónunnar eru alls ekki eins fjarstæðu- kennd og þau virðast í fyrstu þar sem þau skírskota til grundvallarspurninga um merkingu og inntak tilverunnar. Halla Kjartansdóttir Tvær svarthvítar sögur Ragna Sigurðardóttir. Skot. Mál og menning 1997. 135 bls. Skot segir ffá ungri íslenskri konu, Mar- gréti, sem dvelst í Hollandi í nokkra mánuði vegna vinnu. Þar hittir hún Arno, austurlenskan mann. Hittir hann í bókabúð þar sem hún kaupir bók að því er virðist af tilviljun. Bók sem Arno lang- ar í og heitir Samhljómar alheimsins. Eitthvað sem Margrét getur ekki skilið eða skilgreint gerist á milli þeirra og þau eyða deginum saman í íbúð Margrétar. Þau hafa gengið saman ffá bókabúðinni og návist Arnos hefur mikil áhrif á hana. „Ég hló upphátt af tómri gleði, ég var létt í spori, ég var tilbúin að fljúga, til að ganga á glitrandi vatninu, allt var hægt. Ég fann sólargeislana á kinnunum og augunum og sá húð hans lýsast upp í birtunni. Hjarta mitt sló í hverju spori og fingurgómar mínir breyttust í fiðr- ildi. Kannski myndi ég snerta hann.“ Og hún snertir hann og hann snertir hana. En kynni þeirra verða endaslepp, því þegar þau ganga út um eftirmiðdaginn, er Arno skotinn til bana fyrir augunum á Margréti. Stuttu síðar kemst Margrét að þvf að hún erþunguð af hans völdum og hún ákveður að reyna að komast að því hver hann var, þessi maður sem hafði heillað hana upp úr skónum. „Mér fannst hann ekki vera hluti af sama hversdagsheimi og ég, hann talaði ekki mikið, en sagði að hann væri listamað- ur . . . Með Arno varð allt eins og það hafði alltaf átt að vera. Eitthvað við hann mýkti allt í mér, setti hlutina í samhengi. Við hlið hans gekkk tilveran upp, ég fann samhljóm við himininn og vatnið, gang- stéttina, húsin og borgina... Allt var fal- legt og ég hef aldrei upplifað neitt jafn fallegt og hann. Öll ég vildi hann, vildi það sem hann var fyrir mér. Löngun mín eff ir návist hans var áköf og sterk og fyllti mig sælu og trega í senn.“ Margrét kann enga skýringu á þess- um tilfinningum sínum og hún kann enga skýringu á því að Arno er myrtur. Hún er kölluð til yfirheyrslu en getur ekkert upplýst vegna þess að hún þekkir Arno ekki neitt. Það er ungur maður, Ei- ríkur, sem yfirheyrir hana. I leit sinni að því hver Arno var, kynn- ist hún íslenskri konu, Soffíu, sem vinn- ur í galleríi. Soffía kynnir Margréti fyrir vinum Arnos, hjónunum Alex og Romy. Alex sýnir Margréti yfirlæti og hroka en Romy á við hana erindi. Hún biður Mar- TMM 1998:3 www.mm.is 147
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.