Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1998, Page 8

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1998, Page 8
MASSIMO RIZZANTE M.R.: Þegar ég var búinn að lesa Levantado do chao (Lyít frá jörðu) virtist mér að allt sem eftir væri af þessari breiðu sveitasögu, sögunni af fjórum kyn- slóðum Mau-Tempoíjölskyldunnar, allt frá upphafi stéttabaráttunnar til Nellíkubyltingarinnar 1974, væri tónn sem væri samsettur úr ólíkum og að- greinanlegum röddum. Drættir persónanna, orð þeirra, gerðir þeirra, allt var þetta horfið mér úr minni. Jafnvel framrás mannkynssögunnar var rakin í óslitinni og greinarmerkjalausri frásögn sem rann saman við víðáttumikið portúgalskt sveitalandslagið. Þessi ‘munnlegi stíll’ sem er engu líkur, og þú hefur beitt æ síðan, er eitt af því sem gerir verk þín svo frumleg og einstök. Hvernig uppgötvaðir þú hann? J.S.: Ekki er það nú mikið hól að heyra að vel upplýstur lesandi hafi átt svona auðvelt með að gleyma einkennum persónanna, orðum þeirra, gerðum - en ég er afar ánægður með að hjá mér finnist ‘ólíkar og aðgreinanlegar raddir’ . . . Þessi skoðun er náskyld skoðun sem lesandi nokkur lét í ljós við mig á Bókastefnunni í Lissabon fyrir ári, en hann sagði: ‘Þegar ég las Levantado do cháo hugsaði ég með mér: þessi höfundur er engum líkur.’ Ef ég væri beðinn um að segj a eitthvað um þessi ummæli, þá segði ég að ég vonist til að eiga þau áfram skilin. Hvernig stóð á því að ég uppgötvaði það sem þú kallar ‘munnlegan stíl’? Hversu þverstæðukennt sem það kann að hljóma, þá var það hann sem upp- götvaði mig. Fyrir það fyrsta er ég þessTullviss aðþessi samfundur hefði að- eins getað átt sér stað,í--sögu ejks ög Lévantada do cháo, sem fjallar um sveitafólk sem um aldaraðir hafði ekki átt önnur samskipti en munnleg. Ef ég hefði á þessum tíma skrifað borgarsögu, borgaralega sögu, þá hefði þessi ‘munnlegi stíll minn’ aldrei fæðst. Ég segi viljandi/íeðsf. Þessi bók bjó innra með mér í þrjú ár áður en ég byrjaði að festa hana á blað, og þessi þrjú ár glímdi ég við formlega spurningu: hvernig er hægt að komast hjá því að þræða þá leið nýraunsæisins sem söguefnið virðist kalla á? Án þess að hafa yfirstigið þessar efasemdir algerlega ákvað ég að byrja á bókinni, og þegar ég var búinn að skrifa um það bil þrjátíu blaðsíður, gerðist það skyndilega, ég veit ekki hvernig eða hvers vegna, ég skipti úr ‘venjulegum’ stíl, sem ég hafði beitt fram að því, yfir í flæðandi stíl sem virtist ekki fylgja neinum reglum, rétt eins og ég væri að segja frá lífi þeirra sem höfðu sagt mér frá sínu lífi. Svo einfalt var það. Og svo furðulega vildi til að þegar ég fór að skrifa ‘borgaralegar sögur’ (eins og í O Ano da morte de Ricardo Reis, Árið sem Ricardo Reis lést), þá þurfti ekki að breyta ‘munnlega stílnum’ nema smávægilega til að hann nýttist mér jafn vel við aðrar kringumstæður. Þannig varð til sá stíll sem tengir saman skáldsögur sem eru eins ólíkar innbyrðis og Levantado do cháo 6 www.mm.is TMM 1998:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.