Tímarit Máls og menningar - 01.12.1998, Page 26
ANNAAKHMATOVA
Skýringar
Sálumessa (Requiem) er ljóðabálkur um þjáningar rússnesku þjóðarinnar á því
tímabili sem oftast er kennt við Stalín. Skáldið segir ff á sinni eigin reynslu, sem gefur
verkinu persónulega dýpt, en jafnframt er verið að segja frá hörmungum heillar
þjóðar. Þýðanda þótti nauðsynlegt að skýra nokkur atriði án þess þó að íþyngja les-
endum um of.
1. Skelfingarár Jezhov-tímans. N. I. Jezhov var kommisar sovéskra innanríkismála og
yfirmaður NKVD (sem síðar var skammstafað KGB) árin 1936-1938. Hann stóð
fyrir hrikalegum „hreinsunum“, en var sjálfur handtekinn 1938 og líflátinn nokkru
síðar. Á þessum árum var algengt að konur stæðu tímunum saman í biðröðum fyrir
utan fangelsin í von um að fá upplýsingar um horfna ættingja og koma til þeirra
pökkum. Einkasonur Önnu Akhmatovu, Ljev Gúmiljov, var fangelsaður 1935 ásamt
sambýlismanni hennar Nikolaj Púnín.
2. „Einsogskotliðakonurnarforðum... “: Hér er vísað til uppreisnar svonefndra skot-
liða (stréltsí) gegn Pétri mikla 1698. Þeir skotliðár sem til náðist eftir uppreisnina
voru pyntaðir grimmilega og teknir af lífi. Konur þeirra söfhuðust þá saman við
Kremlarmúra og báðu þeim griða.
3. Keisaragarður. Átt er við bæinn Tsarskoje sélo (sem síðar var kenndur við Púshk-
ín) í nágrenni Pétursborgar. Þar var æskuheimili Önnu og þar kynntist hún skáldinu
Nikolaj Gúmiljov sem hún giftist 1910 og skildi við 1918. Hann var tekinn af lífi 1921
fyrir þátttöku í „andsovésku samsæri“.
4. „undir KrossunumKrossarnir (Kresty) hét fangelsi í Leningrad. í Sálumessu er
mikið um trúarlegar vísanir og ekki ótrúlegt að setj a beri nafn fangelsisins í það sam-
hengi.
5. „.. .fieygtmér/aðfótum böðulsins... “ Anna sneri sér beint til Stalíns árið 1935 með
beiðni um að Ljev og Púnín yrði sleppt úr fangelsi. Þeir voru látnir lausir en hand-
teknir aftur síðar. Árið 1950 birti Anna lofkvæði um Stalín í því skyni að bjarga syni
sínum úr prísund í þriðja sinn.
6. Fontannídom nefndist stórhýsi við Fontanka-síkið í Leningrad (Pétursborg). Þar
bjó Anna Akhmatova um árabil.
/.„... húfuderiðblátt“:HéreráttviðeinkennishúfurstarfsmannaNKVDsemkomu
heim til manna að næturlagi og höfðu þá á brott með sér í „svörtum vögnum“ sem
koma fyrir á tveimur stöðum í Sálumessu.
8. „Grát þú ei Móðir, yfir mér/í gröfinni verð Ég“. Hér er vitnað í helgisiðabók rúss-
nesku Rétttrúnaðarkirkjunnar. Þetta mun vera sungið í rússneskum kirkjum á
Föstudaginn langa.
24
www.mm.is
TMM 1998:4