Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1998, Page 32

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1998, Page 32
ÞORSTEINN ÞORSTEINSSON ekki hægt að yrkja ljóð.15 Knopf telur að Brecht hafi þvertámóti sýnt að ljóð- um sé ekkert um megn. Að vísu dugi þá ekki sami skilningur á ljóði og Adorno hafi haft í huga. Annað sem lesandi ljóðanna tekur fljótt eftir er einfaldleiki og hnyttni í orðalagi. Eigindi sem Brecht lagði mikið uppúr og kallaði Zitierbarkeit eða ,ívitnanleika‘. Af þessu leiðir að orðin greypast í minni, losna jafnvel úr sam- hengi og verða partur af tungutaki þjóðar. Því einfaldleikinn er ekki allur þar sem hann er séður. Taka má sem dæmi fáeinar ljóðlínur úr söngvunum í Túskildingsóperutmi: Es geht auch anders, doch so geht es auch // Die Liebe dauert oder dauert nicht // Denn alle rennen nach dem Glúck / das Gluck rennt hinterher // Erst kommt das Fressen, dann kommt die Moral // Der Mensch lebt durch den Kopf / der Kopf reicht ihm nicht aus // Denn fúr dieses Leben / ist der Mensch nicht schlecht genug // Da preist man uns das Leben grofier Geister / das lebt mit einem Buch und nichts im Magen // Nur wer im Wohlstand lebt, lebt angenehm. Talsvert hefur verið þýtt af kvæðum Brechts á íslensku.16 Þar á meðal eru þýðingar á borð við „Barnamorðíngjann Maríu Farrar“ eftir Halldór Kiljan Laxness, „Til hinna óbornu“ eftir Sigfús Daðason og „Kvæði um drukknaða stúlku“ eftir Þorgeir Þorgeirson, sem ég leyfi mér að telja til hins besta í þýðingarskáldskap okkar á þessari öld. Kvæði Brechts njóta sín vel í höndum góðra þýðenda, kannski vegna þess að hann er vitsmunalegt skáld fremur en að áhrif ljóðanna byggist á tilfmningagildi orða í upprunamálinu. Þó getur einfaldleikinn verið erfiður viðfangs og þá er flatneskjan á næsta leiti. Leiksháldið Brecht orti mjög mikið alla ævi og lítill vafi leikur á að ljóðin voru það skáld- skaparform sem honum var eiginlegast. Hann virðist þó hafa litið svo á að leikhúsvinna væri sinn eiginlegi vettvangur og leikritin það sem máli skipti. í blaðaviðtali árið 1926 sagði hann um þessar tvær tegundir skáldskapar: Ljóð mínerueinkalegri. [...] lleikritunumeréghinsvegarekkiaðtjá huga sjálfs mín, heldur hugblæ heimsins ef svo má segja. Með öðrum orðum hlutlæga sýn.17 Orðin lýsa vel viðhorfum Brechts þó um hitt megi deila hversu vel þau lýsi ljóðum hans og leikritum. Það má tilaðmynda halda því fram að Brecht geri sér far um það flestum skáldum fremur að tjá í ljóðum sínum hlutlæga sýn. En þótt ýmsum þyki ljóðskáldið fremra leikritasmiðnum var Brecht lengstaf kunnur fyrst og fremst sem leikskáld og leikstjóri, og er það raunar enn 30 www.mm.is TMM 1998:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.