Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1998, Page 41

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1998, Page 41
BERTOLT BRECHT 1898-1998 þýsku, og það eitt gerir fremur ótrúverðugt að hún hafi skrifað Krítarhringinn. Þetta virðist Þjóðverjum hafa tekist að sýna Fuegi frammá því hann dregur mjög í land með það í hinni þýsku útgáfu bókar sinnar.) Kenningar Fuegis um tilurð verkanna hafa í rauninni að forsendu að hver sem er hefði getað skrifað þau, að minnstakosti hver sem er af þeim hópi sem hann kallar Brecht og kompaní. En ef eitthvert vit á að vera í bókmenntaum- ræðu verður, þegar til lengdar lætur, ekki hjá því komist að tala um ,gæði‘ eða ,eigindir‘ texta. Og nú vill svo til að verkin eru yfirleitt því marki brennd að þar eru á hverju strái setningar sem bera með sér að enginn höfúndur á þýsku hefði skrifað þær nema Bertolt Brecht. Þetta vita allir sem eitthvað þekkja til þýskra bókmennta á þessari öld. Þetta gildir um öll meginverkin, hvort sem um er að ræða ljóð, leikrit eða prósa, þó undantekningar megi finna í þeim verkum sem Brecht gaf ekki út sjálfur en seinna hafa verið birt, á misjöfnu vinnslustigi og misjöfn að gæðum. Um leið og þeirri kenningu er hafnað að höfundarverk Brechts sé að mestu eftir aðra er ekki nema rétt og skylt að viðurkennna, einsog hann sjálf- ur gerði, að margt í því er frá öðrum komið að einhverju leyti. Ýmsum þykir sem nauðsyn beri til að gera nákvæma grein fyrir framlagi aðstoðarmann- anna til þeirra verka sem ,kennd eru við Brecht', svo notað sé orðalag Fuegis. Sá hængur er þó á því að það virðist ámóta auðvelt viðfangs og að finna hvað er frá hverjum í verkum Shakespeares. Brecht hafði einstakt lag á að laða að sér hæfileikamenn, vekja áhuga þeirra, leysa úr læðingi sköpunarkraft þeirra og ,lokka‘ þá til samstarfs; að þessu leyti átti hann sér, að dómi Johns Willett, naumast annan líka meðal listamanna þessarar aldar en Díaghílev hinn rússneska.35 Þar sem Brecht var þar var mikill suðupottur hugmynda, og þeir sem á annað borð felldu sig við þetta vinnulag höfðu af því mikla skemmtun, einsog Elísabet Hauptmann hefur lýst.36 Framlag þessara sam- verkamanna sem hann kallaði svo gat verið margvíslegt: allt frá því að ræða og gagnrýna einstök atriði, orðalag eða byggingu verks; safna efni; þýða úr öðrum málum; og til þess jafnvel að gera drög að senum. Ég vil að lokum taka dæmi af tveimur leikritum sem Fuegi telur að séu ranglega eignuð Brecht; Elísabet Hauptmann sé meginhöfundur þeirra. Gisela Bahr hefur lýst því hvernig vinnan við Heilaga Jóhönnu fór fram, og styðst þar meðal annars við frásögn Elísabetar Hauptmann. Brecht, Haupt- mann og Emil Burri hittust um skeið á hverjum morgni, ræddu framvindu verksins og settust svo við ritvélina. Einnig komu Hauptmann og Burri með uppköst sem Brecht krotaði fyrst í og sneri svo í bundið mál. Bahr birtir tilað- mynda drög að atriði sem Burri samdi að öllum líkindum, lagfæringar Brechts og síðan atriðið einsog það lítur út í fyrstu gerð leiksins.37 Slíkur samanburður leiðir í ljós, með óyggjandi hætti að mínum dómi, að sú lýsing TMM 1998:4 www.mm.is 39
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.