Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1998, Page 84

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1998, Page 84
GYRÐIR ELÍASSON Korolenko og sögur hans frá Síberíu, og síðast en ekki síst vesturíslendingur- inn Jóhann Magnús Bjarnason með sagnakver sitt, Vornætur á Elgsheiðum. Líklega má víða sjá þessum höfundum stað í bókum Guðmundar, þó hann stæli þá hvergi. En auk þess eru sögur hans mjög markaðar hans „fyrri konu“ í listinni - ljóðadísinni. Hann skildi semsagt aldrei almennilega við hana, sem betur fer. Auk erlendra og innlendra ljóðskálda af risakyni liðins tíma, eru honum mjög hugleikin íslensk alþýðuskáld, stundum jafnvel þau sem náðu ekki út fyrir dalinn hans. Bæði skrifaði hann um þau í sjálfsævisögu sinni, og svo þætti í Grímu Þorsteins M. Jónssonar, og er ljóst að þau hafa verið honum mikils virði. Hér mætti vitna lauslega í Halldór Laxness: „Við- urkenning er ekki alltaf mælikvarði á skáld. Mörg góð skáld hafa aldrei öðl- ast neina viðurkenningu.“ Alþýðuskáldin á ekki að forsmá. Það er mikill misskilningur að eingöngu eigi að lesa stórskáldin. í formála að smásagna- safni kínverska skáldsins Lú Hsun (ísl. þýð: Halldór Stefánsson), er sagt frá því hvernig hann hallaði sér sérstaklega að alþýðuskáldum langtímum sam- an til að sækja sér næringu og styrk. Eftilvill ætti að skoða bókmenntir einsog náttúruna; manni verður kannski starsýnt á fjöllin, en hugar líka að steinum og jurtum - og lítilsvirðir ekkert af þessu. Annars fór Guðmundur sínar eigin leiðir í skáldskapnum: tók að vísu mið af fjöllum, en þræddi sína stíga. Sagan Mýrarþoka er t.d. frumleg saga í raunverulegum skilningi þess orðs. Hún er ekki bergmál af Maupassant eða öðrum erlendum snillingum, einsog vill brenna við með íslenska smásagnahöfunda þessa tímabils. Og samt nær hann því að vera alþýðlegur og alþjóðlegur í senn í bestu sögum sínum - eða öllu heldur sammannlegur. Gríska ljóðskáldið Gíorgos Seferis talar á einum stað um „auðmjúka list,“ og líklega væri hægt að flokka sögur Guðmundar þar undir - en í auðmýktinni býr dulinn styrkur. Þeir sem þekkja að ráði til íslenskrar smásagnagerðar, vita að bestu sögur Guðmundar verður að telja með því fremsta sem gert var í þeirri grein á sín- um tíma. Sérstaklega ber að nefna söguna Mýrarþoku, sem birtist í smá- sagnasafninu Rautt sortulyng árið 1967. Mýrarþoka er saga sem hiklaust má telja upp í sömu andrá og t.d. Grimmd Halldórs Stefánssonar, eða Marjas Einars H. Kvaran. Síðastliðið haust var haldið bókmenntakvöld í Reykjavík þar sem lesið var upp ljóðið Bernska II eft ir Sigfús Daðason. Þegar skáldið las sjálft upp ljóð sitt af geisladiski og kom að orðunum: „Börnin hans voru gáfuð og tilfinninga- rík og berklaveik. Hann var ógæfumaður“ - þá fóru allir að hlæja. Sigfús Daðason var vafalaust mikill húmoristi, en honum hefur varla verið hlátur í hug við þetta niðurlag ljóðsins. Sá sem hefur lesið söguna Mýrarþoku eftir Guðmund, um efni sem snertir þetta sama, hann getur ekki hlegið að þessari línu Sigfúsar. Ef það er menning að sitja á kaffihúsi og hlæja að börnum sem 82 www.mm.is TMM 1998:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.