Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1998, Page 108

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1998, Page 108
KRISTJÁN kristjánsson an lungann úr bresku rökræðunni um póstmódernismann frá síðustu árum og lagði ekki hvað síst áherslu á þverbrestina sem ýmsir hafa fundið í isma þessum. Innflutt umræða í útdráttarstíl? Já. Frumleg og fyndin spekimál að norðan? Því miður ekki. Flversu gott hugðu ekki ég og margir aðrir til glóðar þegar fréttist að Þor- steinn Gylfason heimspekingur ætlaði að ræða um póstmódernismann og greinaflokk minn á fundi hjá Hollvinafélagi heimspekideildar Háskóla íslands hinn 28. mars síðastliðinn. Þeim mun meiri vinaraun varð það hins vegar að fylgjast með öfugsprettum hans: þeim sem nú hafa birst á prenti, sáralítið breyttir, í þessu tímariti. Frómt frá sagt féll mér allur ketill í eld við að hlusta á mál heimspekingsins góða; en ég hafði verið fluttur á staðinn með nokkurri viðhöfn og meira að segja boðið að taka til máls. Var ég því verr undirbúinn til andsvara sem mér hefði verið ógerlegra að ímynda mér að hann gæti sveigt svo mjög til við öll eldri viðhorf sín sem raun bar vitni um á þessum marsdegi - enda gafst mér ekki kostur á að kynna mér erindi hans fyrirfram. Það var engu líkara en umskiptingur væri í ræðustól. Ég sagði að svör mín yrðu að bíða betri tíma. Sá tími er nú kominn. Það var ekki einvörðungu inntakið í málflutningi ræðumanns sem kom mér í opna skjöldu heldur ekki síður umgerðin. Eitt er nú fyrir sig að saka mig um að vilja ekki ræða þetta og hitt í heimspekilegan þaula í dagblaði, þar á meðal afstæðishyggju. Koma þau ummæli að vísu úr hörðustu átt frá manni sem verið hefur háskólakennara iðnastur við að hasla sér þann sama alþýðlega völl og ég í Lesbókargreinunum og kynna fyrir almennum blaða- lesendum, af ýmsu tilefni, hugmyndir heimspekinga á borð við Hume, Frege og Wittgenstein á hnitmiðaðan hátt þótt vettvangurinn leyfði ekki mikla heimspekilega dýpt. Dæmið af afstæðishyggjunni er og einkar óheppilega valið af þeirri ástæðu að Þorsteini er vel kunnugt um að engir íslenskir heim- spekingar, nema þá hann sjálfur og Páll Skúlason, hafa skrifað jafhmikið af fræðilegu efni til höfuðs henni á íslensku og ég. Þar að auki hef ég gefið út bók á ensku sem segja má að sé samfelld árás á eina tegund afstæðishyggju.4 Ég kannast hins vegar ekki við framlag Þorsteins Gylfasonar til alþjóðlegrar umræðu um það efni. Hitt var, ef eitthvað er, mun ó-Þorsteinslegra - af manni sem þekktur er að smekkvísi - að skreyta mál sitt allt dylgjum og skensi um persónu mína og þá stofnun sem ég vinn við, Háskólann á Akur- eyri. Fyrir nú utan þá augljósu staðreynd að ávirðingar mínar eða meint skringilegheit Akureyrar (sem Þorsteinn spurði hvort væri í Ástralíu) og há- skóla þar koma kostum póstmódernisma ekkert við. Þessar glósur, sem sal- urinn kjökurhló hvað mest að í mars, hafa verið felldar niður úr endanlegri gerð erindisins - mér sýnist það veigamesta breytingin sem á því hefur verið gerð - þökk sé höfundi eða einhverjum hollvina hans sem lásu það yfir. 106 www.mm.is TMM 1998:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.