Náttúrufræðingurinn - 2010, Side 45
45
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Ævar Petersen
Rita í Breiðafjarðareyjum:
varpdreifing, stofnbreytingar,
landnám og talningaraðferðir
Inngangur
Hérlendis eru þekktir um 270 varp-
staðir ritu Rissa tridactyla (Skrá yfir
sjófuglabyggðir á Íslandi). Undan-
farna áratugi hefur þeim fjölgað því
nýir staðir hafa bæst við en nokkrir
varpstaðir eru ekki lengur notaðir.
Fjöldi staða fer að nokkru eftir því
hvernig talningareiningin varpstað-
ur, varp eða byggð (varpbyggð) er
skilgreind. Velta má fyrir sér hvort
nærliggjandi varpstaðir skuli taldir
ein, tvær eða fleiri byggðir. Og þá
hvaða fjarlægð eða landslagsþættir
nægi til að skilja að staði svo þeir
teljist fleiri en ein byggð með réttu.
Breytingar á stærð varpa geta einn-
ig haft áhrif á hve mörg vörpin eru
talin. Ef til vill er líffræðilega skil-
greiningin réttust, þ.e. hvort fuglar
færi sig til milli staða, en hún er alls
óhagkvæm.
Hvað ritubyggðir snertir er að-
greining varpa yfirleitt vandalítil en
oft er örðugra þegar aðrir sjófuglar
eiga í hlut, svo sem fýll Fulmarus
glacialis eða teista Cepphus grylle.
Hvað ritur snertir eru helst vand-
kvæði þegar þær verpa á aðskildum
blettum á takmörkuðu svæði, t.d. í
sömu eyju eða á sama klettavegg. Þá
er matsatriði hvort varp skuli talið
eitt eða fleiri. Hér er eyja talin eitt
varp þó fuglarnir verpi á aðskildum
Rita er ein af 22 tegundum sjófugla sem verpa á Íslandi og er hún með
algengustu varpfuglum okkar.1 Frá árinu 1974 hefur höfundur safnað
margvíslegum gögnum um fuglalíf Breiðafjarðareyja, m.a. um ritu-
vörp.2,3,4,5 Í því skini hafa breiðfirskar ritubyggðir verið taldar í eitt eða
fleiri skipti, þar af gerð heildartalning í tvígang. Fjallað er um dreifingu
ritubyggða á Breiðafirði, breytingar á breiðfirskum rituvörpum og land-
nám fuglanna á mismunandi varpstöðum. Að lokum eru bornar saman
niðurstöður talninga samkvæmt tveimur mismunandi aðferðum.
1. mynd. Rituvarp í Hrólfskletti við Flatey á Breiðafirði. Ritur verpa oft rétt ofan hæstu
sjávarstöðu en neðst á myndinni sést samfellt hrúðurkarlabelti og þang. – The Kittiwake
colony at Hrólfsklettur, near Flatey in Breiðafjörður, NW. Iceland. The birds often nest just
above the high water mark. Barnacles forming a continuous belt can be seen at the bottom
of the photo, together with seaweed. Ljósm./Photo: Ævar Petersen, 11.06.2005.
Náttúrufræðingurinn 79 (1–4), bls. 45–56, 2010
Ritrýnd grein
79 1-4#loka.indd 45 4/14/10 8:49:48 PM