Náttúrufræðingurinn - 2010, Blaðsíða 52
Náttúrufræðingurinn
52
getur þýtt að þar séu elstu vörpin í
raun eða betri heimildir. Sú elsta er
um varpið í Elliðaey 1705 í Jarðabók
Árna Magnússonar og Páls Vídalín.24
Í það minnsta helmingur varp-
anna (29) myndaðist örugglega ekki
fyrr en á 20. öld (hvort sem þau
hafa verið til á öldum áður eða
ekki), mörg ekki fyrr en á síðustu
áratugum aldarinnar. Þannig urðu
til ekki færri en 18 eftir 1975, öll
ennþá næsta lítil. Styst er síðan ritur
hófu að verpa í Mýhólma í Hergils-
eyjarlöndum (2006). Aldur 15 varpa
er ókunnur en sennilega hafa flest
þeirra myndast á 20. öld.
Vörp hafa lagst af frá aldamótum
2000, t.d. í Akurey (2005) og Heimri-
Langey við Flatey (2006).
Sögulegar breytingar
Ef litið er lengra aftur í tímann en
síðustu áratugi er ljóst að rituvörp
hafa breyst yfir mun lengra tímabil.
Elstu gögn um stærð breiðfirskra
ritubyggða eru frá því um 1840. Þá
áleit Ólafur Sívertsen 100–200 varp-
pör í Hafnarey við Flatey.25 Vísbend-
ing er einnig til um stærð nágranna-
varpsins í Hrólfskletti frá 1837 en þá
voru teknir þar 80 rituungar.26 Gera
má ráð fyrir að þar hafi kannski ver-
ið 50 hreiður því varpið er mestallt
aðgengilegt (sjá 1. mynd) og flestir
ungar auðteknir.
Þessi vörp voru mun stærri síð-
ustu áratugi en á 19. öld, 4 til 7 sinn-
um eftir því hvort notaðar eru tölur
frá 1993–1994 eða 2005–2007.
Varpið í Klofningi við Flatey er
þekkt frá því fyrir 190827 en hvarf
alveg á tímabili því um 1934 voru
þar engar ritur (Sturla Bogason,
munnl. uppl.). Landnám hófst að
nýju árið 1935 með tveimur hreiðr-
um (Jón Bogason, munnl. uppl.).
Finnur Guðmundsson nefnir Klofn-
ing ekki sem rituvarpstað 194228 svo
annaðhvort hafa ritur horfið þaðan
á ný eða aðeins örfá pör sem ekki
tók því að nefna. Þá var Finni sagt
að 50–60 hreiður væru í Skjaldmeyj-
areyjum í Hergilseyjarlöndum en
þar voru 560 hreiður 1984 og 1363
árið 1994. Ljóst er að varpið í Hafn-
arey við Flatey óx verulega á miðjum
til seinni hluta 20. aldar. Árið 1945
var Björn Björnsson frá Norðfirði í
fuglaljósmyndaferð um Breiðafjarð-
areyjar og tók þá mynd af austurhlið
Hafnareyjar. Myndir af nákvæmlega
sama svæði 40 árum síðar sýna að
varpið á þeim bletti hafði aukist úr
57 hreiðrum í 145.4 Þá minnist Hall-
björn Bergmann (munnl. uppl.) þess
að fermingarvorið hans 1949 hafi rit-
ur verið nýbyrjaðar að verpa innan í
Hafnarey en fram að því höfðu þær
aðeins orpið utan í eynni.
Tiltæk gögn um rituvörp benda
eindregið til að þau hafi verið langt-
um minni á fyrri hluta 20. aldar en
seinni hluta hennar, einnig á 19. öld.
Erfitt er að staðhæfa að þessar eldri
tölur séu fullgildur mælikvarði á
ritustofninn á Breiðafirði í heild á
fyrri hluta 19. aldar. Sé það rétt hef-
ur breiðfirski ritustofninn verið að-
eins 2–3 þúsund varppör um 1840,
eða þriðjungur af því sem hann var
2005–2007 og einungis tíundi hluti
stofnsins 1993–1994.
Samanburður á talningar-
aðferðum
Eins og fram hefur komið eru tvær
meginaðferðir helst notaðar við
talningar í rituvörpum, talning á
staðnum af sjó eða landi („ground-
truthing“) og talning af loftmyndum.
Sú spurning vaknar óhjákvæmilega
hvort aðferðirnar tvær gefi sam-
bærilegar niðurstöður og, ef ekki, í
hverju er munur á þeim fólginn. Til
þess að nálgast þá spurningu voru
valdar tölur úr greinum Arnþórs
Garðarssonar6,7 um þær ritubyggðir
sem einnig voru til tölur frá höfundi.
Til að talningar séu samanburð-
arhæfar voru valdar allar tölur frá
sama stað, sama ári og svipuðum
tíma sumars.
Tölur reyndust vera til úr tíu ritu-
byggðum sem voru mismunandi
að stærð, frá tæpum 200 hreiðrum í
vel á annað þúsund. Þær eru bornar
saman með línulegri aðfallsgrein-
ingu (10. mynd).
Mjög góð línuleg fylgni er milli
talninga (nánast 100%) og eykur
hún áreiðanleika talninganna sem
voru framkvæmdar algerlega án
nokkurs samráðs. Einn munur er þó
eftirtektarverður, því tölur Arnþórs
eru nær alltaf lægri. Samanlagt voru
6.659 hreiður í 10 vörpum í talning-
um höfundar en 5.960 í talningum
Arnþórs, eða að meðaltali 10,5%
lægri. Í eitt skipti var tala Arnþórs
hærri (555 í Rifi í Sauðeyjum) en
höfundar (535).
10. mynd. Samanburður milli flugtalninga Arnþórs Garðarssonar (AG)6,7 og land- og
sjótalninga höfundar (ÆP) í tíu ritubyggðum á Breiðafirði*. Talningarnar fóru fram 1984.
– Comparison between counts from aerial photographs (AG)6,7 in 1984 and in the same year
from land and/or sea in 10 colonies on the Breiðafjörður islands* by the author (ÆP).
* Hrólfsklettur og Kirkjuklettur í Flateyjarlöndum, Innri-Hrauney, Skutulsey og Skjaldmeyjareyjarhólmi
í Hergilseyjarlöndum, Ytri-Rauðsdalshólmi, Rif, Skarfey, Þórisey og Ytri-Kiðhólmi í Sauðeyjalöndum.
y = 0,8471x + 31,937
R2 = 0,9824
0
200
400
600
800
1000
1200
1400
0 200 400 600 800 1000 1200 1400 1600 1800 2000
Fj
öl
di
A
G
Fjöldi ÆP Fjöldi ÆP / Numbers in ground thruthing
Fj
öl
di
A
G
/
N
um
be
rs
in
a
er
ia
l s
ur
ve
ys
79 1-4#loka.indd 52 4/14/10 8:49:51 PM