Náttúrufræðingurinn - 2010, Page 61
61
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
á kosið, en á einu ári breyttist þetta
ástand í hallæri þar sem átu skorti
og viðkoma brást. Lífríkið var tvö til
þrjú ár að jafna sig en svo endurtók
sagan sig. Eftir hrun átustofna árið
1983 var menn farið að gruna að
einhver slíkur sveiflugangur væri
í vistkerfinu. Sumir Mývetningar
af eldri kynslóðinni töldu þetta ný-
lundu, en samfelld mæligögn náðu
ekki lengra en til rétt fyrir 1970 og
fyrsta skráða hrunið varð einmitt
það ár.16 Síðar hefur komið í ljós
að bleikjustofninn í Mývatni þolir
ekki þessi hrun. Þau hindra eðlilega
endurnýjun stofnsins og gera hann
ofurviðkvæman fyrir veiði.17 Þessar
öfgakenndu sveiflur geta því varla
hafa staðið mjög lengi, en nú er ekki
talið útilokað að lífríkið hafi verið
einhverjum sveiflum undirorpið
alla tíð, en lægðirnar hljóta yfirleitt
að hafa verið mildari en raunin er
nú á tímum.
Tvær brautir
Það var Arnþór sem fyrstur manna
áttaði sig á því að góðæri einkennd-
ust af grófgerðri átu (stærri krabba-
dýrum og rykmýi) og góðri afkomu
bleikju og fugla, en í hallærum væri
átan smágerð (örsmá krabbadýr)
og helstu afræningjar væru holdýr
(Hydra) og hornsíli. Arnþór byggði
þessa hugmynd á reynslu sinni af
magainnihaldi fugla og fiska og
var fljótur að sjá samsvörun við
nýlegar hugmyndir erlendra vist-
fræðinga um að lífríki gæti skipt
um rás, ef svo má að orði komast,
þ.e. meginstraumur fæðuvefsins
gæti flust úr einum farvegi í annan.
Illa gekk þó að samræma það þeirri
hugmynd sem gögn okkar bentu til,
þ.e. að breytingarnar væru sveiflu-
kenndar og minntu á stofnsveiflur
sem þekktust víða í vistkerfum (og
Arnþór gjörþekkti í rjúpnasveiflum).
Hugmynd Arnþórs um rásaskipti
5. mynd. A: Einföld fæðukeðja. Hún dugir
engan veginn til að lýsa vistkerfi Mývatns.
B: Fæðuvefur verður til. Groti og hrygg-
lausum rándýrum hefur verið bætt inn. C:
Fæðuvefurinn mótaður enn frekar. Hér eru
smáfiskar komnir á sinn stað. – A: A simple
food chain does not describe the situation
well enough. B: A food web appears when
detritus and invertebrate predators are in-
cluded. C: Small fish complete this still
much simplified food web.
6. mynd. Fæðusamsetning bleikjunnar árin 1986–2005. Í hallærum lifir bleikjan á hornsíli og
bobbum en góðærin einkennast af gnótt krabbadýra (kornátu og langhalafló). Rykmý er oft
aðalfæðan vor og sumar en þessi mynd byggist á gögnum sem safnað er á haustdögum. (Byggt
á gögnum frá Guðna Guðbergssyni, Veiðimálastofnun.) – Food of the Arctic charr (Salvelinus
alpinus) in the period 1986–2005. Sticklebacks (Gasterosteus) and snails (Radix) dominate
in lean years. (Based on data from Guðni Guðbergsson, Institute of Freshwater Fisheries.)
C:
A:
B:
79 1-4#loka.indd 61 4/14/10 8:50:06 PM