Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2010, Page 68

Náttúrufræðingurinn - 2010, Page 68
Náttúrufræðingurinn 68 Aðalheiður Jóhannsdóttir Náttúrufræðingurinn 79 (1–4), bls. 68–74, 2010 Ritrýnd grein Íslenskur réttur inniheldur ekki almennar reglur um það hvernig mörkum friðlýstra friðlanda, þ.m.t. þeirra sem innihalda Ramsarsvæði, verði breytt eða þau felld niður, né heldur á hvaða forsendum slíkar breytingar verði gerðar. Samningsaðilar Ramsarsamningsins hafa hins vegar samþykkt ákveðin sjónarmið sem mögulegt er að leggja til grundvallar við mat á svo- kölluðum brýnum þjóðhagsmunum, en það eru þeir hagsmunir sem samn- ingurinn viðurkennir að geti réttlætt breytingar á Ramsarsvæðum. Þessi til- teknu sjónarmið hafa ekki verið gerð hluti af íslenskum rétti og þ.a.l. hefur ekki reynt á beitingu þeirra í íslenskri réttarframkvæmd. Hins vegar hefur mörkum annarra friðlýstra svæða verið breytt og dæmi eru um að friðlýs- ing friðlanda hafi verið felld úr gildi. Í greininni er m.a. fjallað um nokkur dæmi um slíkar breytingar og komist að þeirri niðurstöðu að undirbúningi ákvarðanatöku hafi verið ábótavant þar sem ekki hafi farið fram mat á þeim hagsmunum sem í húfi voru, þ.m.t. verndargildi viðkomandi svæða. Komist er að þeirri niðurstöðu að nauðsynlegt sé að innleiða sjónarmiðin sem samþykkt hafa verið á vettvangi Ramsarsamningsins í íslenskan rétt. Á þann hátt má auka fyrirsjáanleika réttarins og réttaröryggi og umfram allt tryggja betur að markmiðum Ramsarsamningsins verði náð hér á landi. Inngangur Þann 2. apríl 1978 varð Ísland aðili að Samþykkt um votlendi, sem hafa alþjóðlegt gildi, einkum fyrir fuglalíf (á ensku: Con vention on Wetlands of International Import ance, Especi ally as Wa ter fowl Habitat) frá 1971, sem oft er nefnd Ramsarsamningur, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/1978.1 Skömmu áður, eða þann 2. desember 1977, var Mývatns- og Laxársvæðið tilnefnt á skrá Rams- arsamningsins yfir Ramsarsvæði, í samræmi við 2. gr. samnings- ins, og hefur svæðið notið alþjóð- legrar verndar sem votlendissvæði frá 2. apríl 1978. Það var jafnframt Breytingar á mörkum friðlýstra svæða með áherslu á Ramsarsvæði 1 Samningnum var breytt lítilsháttar árið 1987 og öðluðust þær breytingar gildi hvað Ísland varðar þann 1. maí 1994, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 49/1995. Jafnframt var samþykkt bókun við samninginn árið 1982 sem öðlaðist gildi hvað Ísland varðar þann 1. október 1986, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 10/1986. 1. mynd. Grunnafjörður. Ljósm.: Magnús Axelsson. 79 1-4#loka.indd 68 4/14/10 8:50:31 PM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.