Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2010, Page 72

Náttúrufræðingurinn - 2010, Page 72
Náttúrufræðingurinn 72 26 Sjá nánar Alþt. 2003–2003, A-deild, þskj. 843 – 564. mál, og einnig nefndarálit umhverfisnefndar, Alþt. 2003–2004, A-deild, þskj. 1604 – 564. mál. 27 Reglugerð nr. 879/2004 um Skaftafellsþjóðgarð, ásamt síðari breytingum, var felld úr gildi með 37. gr. reglugerðar nr. 608/2008 um Vatnajökulsþjóðgarð. Þessi staðreynd breytir þó ekki vægi dæmisins. Sérstök friðlýsing Esjufjalla, sbr. auglýsingu nr. 188/1978 um friðland í Esjufjöllum, var einnig felld niður með 37. gr. reglugerðar nr. 608/2008. Réttarframkvæmd á Íslandi Almennt Eins og nefnt var inniheldur íslensk- ur réttur ekki reglur um hvort eða hvernig mörkum friðlanda, þ.m.t. Ramsarsvæða, verði breytt eða þau felld niður, né heldur á hvaða for- sendum slíkar breytingar verða gerðar. Vitað er um eitt tilvik þar sem dregið hefur verið úr lagalegri verndun skilgreinds Ramsarsvæðis og er þar átt við Mývatns- og Laxár- svæðið, en eftir því sem næst verður komist hefur mörkum Ramsarsvæðis- ins ekki verið formlega breytt. Hins vegar hefur mörkum annarra frið- lýstra svæða verið breytt og einnig eru þess dæmi að friðlýsing tiltek- ins svæðis hafi verið felld niður. Verður nú getið nokkurra dæma og skoðað hvaða sjónarmið voru lögð til grundvallar við þær breytingar. Einnig verður fjallað um nýlega ákvörðun umhverfisráðherra vegna tiltekins Ramsarsvæðis. Ákvörð- unin varðar staðfestingu á aðal- skipulagi og undirstrikar mikilvægi skipulagsáætlana sem stjórntæk- is umhverfisverndar. Áður en að þessari umfjöllun kemur er rétt að skoða nánar gildissvið laga nr. 97/2004 um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu og þær breytingar sem urðu á lagalegri verndun Ramsarsvæðisins Mývatns og Laxár með gildistöku laganna. Mývatns- og Laxársvæðið Eins og fyrr sagði er Mývatns- og Laxársvæðið viðurkennt Ramsar- svæði og hefur það notið alþjóðlegr- ar verndar frá 2. apríl 1978. Allt land- svæðið sem varð að Ramsarsvæði var verndað með sérstökum lögum árið 1974, sbr. lög nr. 36/1974 um verndun Mývatns og Laxár í Suður- Þingeyjarsýslu. Ramsarsvæðið sem slíkt nær yfir svæðið innan fjalla- hringsins, þ.e. að Kröflu í norðri og suður fyrir Kráká, að hreppamörk- um í vestri og austur í Búrfellshraun. Lögin frá 1974 voru hins vegar leyst af hólmi með lögum nr. 97/2004 um verndun Mývatns og Laxár í Suður- Þingeyjarsýslu. Landfræðilegt gildis- svið laga nr. 97/2004 er á ákveðinn hátt takmarkaðra en gildissvið laga nr. 36/1974 en öll ákvæði þeirra laga giltu um Skútustaðahrepp og þar með var allt vatnasvið Mývatns og allt Ramsarsvæðið verndað með sérstökum lögum. Lög nr. 97/2004 vernda fyrst og fremst vatnsyfirborð Mývatns og Laxár og 200 m svæði umhverfis Mývatn og Laxá, svo og þau votlendi sem liggja að Mývatni, sbr. nánar 2. gr. laganna. Ef gildis- svið nýju laganna er borið saman við skilgreiningu Ramsarsvæðisins, sem upphafleg verndun var miðuð við og endurspeglaðist í lögum nr. 36/1974, vernda nýju lögin einvörð- ungu 20% eða minna af upphaf- lega Ramsarsvæðinu. En vissulega njóta mikilvægustu votlendissvæðin áfram verndar að íslenskum rétti þótt ekki verði framhjá því litið að stærsti hluti alþjóðlega Ramsar- svæðisins nýtur nú ekki sérstakr- ar verndar lögum samkvæmt og vatnasviðið sem heild nýtur tak- markaðrar verndar. Hvorki laga- frumvarpið sem varð að lögum nr. 97/2004 né önnur lögskýringargögn bera það með sér að efni ályktunar nr. VIII.20 hafi verið sérstaklega skoðað vegna þessarar breytingar á lagalegri verndun Ramsarsvæðisins að íslenskum rétti. Strangt tekið var það ekki nauðsynlegt þar sem mörk alþjóðlega Ramsarsvæðisins eru enn óbreytt. Á hitt er að líta að dregið hefur verið úr lagalegri verndun Ramsarsvæðisins Mývatns og Laxár að íslenskum rétti og spurningin sem þarf að svara er fyrst og fremst sú hvort Ísland uppfylli nú þau ákvæði Ramsarsamningsins sem kveða á um verndun Ramsarsvæða. Niðurstaða um gildissvið laga nr. 97/2004 virðist hafa ráðist af þrem- ur atriðum: Í fyrsta lagi af pólitískri málamiðlun hagsmunaaðila. Í öðru lagi var því teflt fram að Ísland hef- ur á undanförnum áratugum gerst aðili að mörgum alþjóðlegum samn- ingum á sviði umhverfisverndar. Í þriðja lagi með tilvísun til almennra laga á sviði umhverfis- og nátt- úruverndar.26 Hvað varðar tilvís- un til alþjóðlegra samninga á sviði umhverfisverndar og almennra laga á sviði umhverfis- og náttúruverndar er erfitt að sjá hvernig þetta stuðlar að öruggri verndun Ramsarsvæðis- ins. Sem svar við þeirri spurningu sem varpað var fram má efast um að verndun Ramsarsvæðisins Mývatns og Laxár sé nú tryggð – a.m.k. gefur gildissvið laga nr. 97/2004 tilefni til efasemda. Dæmi úr réttarframkvæmd Árið 2004 tók gildi ný reglugerð nr. 879/2004 um Skaftafellsþjóðgarð sem leysti af hólmi eldri reglugerð nr. 319/1984 um þjóðgarð í Skafta- felli, með síðari breytingum, og aug- lýsingu nr. 215/1975 í B-deild Stjórn- artíðinda um friðland í Lakagígum.27 Tvennt vekur athygli í reglugerð nr. 879/2004. Í fyrsta lagi að friðlandið í Lakagígum hafi verið lagt niður og í öðru lagi lagaheimildin sem stuðst er við, en vísað er til 4. mgr. 52. gr. laga nr. 44/1999 um náttúruvernd í 23. gr. reglugerðar nr. 879/2004 þar sem getið er lagastoðar. Í 4. mgr. 52. gr. segir að umhverfisráðherra setji, að fenginni tillögu Umhverfis- stofnunar, reglugerð um meðferð og rekstur þjóðgarða og umgengni almennings. Hins vegar er fjallað um stofnun friðlýstra svæða í 53. gr. laga nr. 44/1999 en lögin innihalda hvorki sérstakt ákvæði né nokkrar leiðbeiningar um það hvaða for- sendur leggja beri til grundvallar þegar friðlýsing friðlands er felld niður. Í reglugerð nr. 879/2004 er ekki gerð grein fyrir því af hverju friðlandið Lakagígar var lagt niður. Í bréfi til umhverfisráðuneytisins, dags. 29. janúar 2008, var óskað eftir upplýsingum um rökstuðning að baki ákvörðuninni um að fella nið- ur friðlýsinguna og hvort kostnaðar- og ábatagreining eða annars konar 79 1-4#loka.indd 72 4/14/10 8:50:31 PM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.