Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2010, Side 119

Náttúrufræðingurinn - 2010, Side 119
119 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags og jafnvel ættkvíslum anda; t.d. eru kynjahlutföll gráanda (Anatini) oft 50–55% steggir en kynjahlutföll kaf- anda (Aythini og Mergini) hins vegar oft 55–65% steggir. Takmarkað framboð kvenfugla er einna afdrifaríkast í hvíthöfða (Anas sibilatrix) í Suður-Ameríku, þar sem fullorðnir steggir biðla stundum til nýfleygra unga.10 Sé kynjahlutfall ójafnt getur sjaldgæf- ara kynið verið vandfýsnara í maka- vali.7 Endur eru að grunni til ein- kvænisfuglar (iðka þó lauslæti undir vissum kringumstæðum) án þess að karlfuglarnir taki þátt í ungaupp- eldi.7,11 Pörin taka saman að vetri til og eru saman þar til steggirnir yfirgefa kollurnar rétt eftir að álega hefst.7,12 Álag vegna ungauppeldis og ásækni rándýra á varp- og unga- tíma er talið valda því að kollur eru færri en steggir.7 Auk þess fara kollur seinna í felli en steggir og hafa því e.t.v. lakara aðgengi að fellistöðvum og síðar vetrarstöðvum. Steggirnir ganga ekki út nema til séu kollur á lausu eða þá að þeim takist að stela kollu frá öðrum stegg.12 Skekkt kynjahlutfall anda er því talið afleiðing félagskerfis anda (þ.e. einkvæni án foreldraum- önnunar karldýrs) en ekki orsök þess.11 Hin skekktu kynjahlutföll valda hins vegar harðri samkeppni meðal steggjanna um hylli kollanna. Kyn- val (e. sexual selection) hefur leitt til þróunar skrautlegra búninga andasteggja.11,12 Ólíkt ýmsum öðr- um fuglum þar sem karlinn er skrautlegur, geta andasteggir ekki tryggt sér mökunarrétt yfir mörgum kvenfuglum.13 Það er því ekki neinn sigurvegari sem einokar alla kven- fugla, eins og t.d. hjá þiðri (Tetrao urogallus) og fasanorra (Centrocercus urophasianus).14,15 Eftir parmyndun ver steggurinn kolluna fyrir ágangi óparaðra steggja og gerir það henni kleift að éta leng- ur en óparaðar kollur og byggja þannig upp forðanæringu.7,16 Stegg- urinn þarf að ganga á forðanæringu við að verja kollu sína fyrir ágangi keppinauta.17,20 Kollan græðir því á sambandinu en steggurinn hlýtur að sama skapi að vega áhættuna af því að verða afgangssteggur á móti orkukostnaðinum af pörun og makavörn.17 Svo virðist sem kald- ara loftslag auki álag á efnaskipti og næringarbúskap, þannig að fuglar þurfa annaðhvort að hörfa í hlýrra loftslag, éta meira eða draga úr kostnaðarsömu atferli.18 T.d. draga kafendur úr biðilsatferli yfir dimm- ustu vetrarmánuðina en auka það aftur þegar vorar.19 Því er ákveð- inn orkusparnaður fólginn í því að seinka pörun þar til síðla vetrar, og parast t.d. stokkendur (A. platyrhyn- chos) seinna á köldum svæðum en hinum hlýrri.21 Breytileiki í kynjahlutföllum eftir landsvæðum Endur á Norðurhveli eru flestar far- fuglar en nokkrar tegundir hjara af veturinn á norrænum slóðum.6,19,22 Kynjahlutföll eru breytileg innan tegundar eftir hnattstöðu að vetri til, þ.e. kynjahlutfallið er jafnast syðst en hlutfall steggja hæst nyrst.23,24 Endur eru reyndar ekkert einsdæmi meðal fugla að þessu leyti.25,26 Þetta hefur verið skýrt með tveimur til- gátum, sem reyndar spá báðar þessu mynstri, þ.e. (1) að steggir eru stærri en kollur (brenna því færri hitaeiningum á hvert gramm) og halda því betur jöfnum líkams- hita í köldu veðri, auk þess að þola betur sult en kollurnar, sem eru kuldafælnari og leita sunnar á bóginn þegar kólnar í veðri23,27,28,29 (hér eftir nefnt kuldaþolni), og (2) virðingarstigi anda er á þá leið að pör ríkja yfir ópöruðum fuglum en steggir ríkja yfir kollum7; steggir ná því að leggja undir sig þau vetrar- svæði sem eru næst varpstöðvunum en kollurnar hrekjast sunnar ásamt ungfuglum (hér eftir nefnt yfir- gangur steggja).27,30,31 Sýnt hefur verið fram á að hlut- fall steggja er hærra á bestu búsvæð- unum en jafnara á hinum lakari.27,29 Meðal dúkanda (Athyia valisneria) eru norðlægari hópar skipaðir hlut- fallslega fleiri steggjum en suðlæg- ari hópar.27 Hér er um þéttleikaháð áhrif að ræða, því steggir voru einnig flestir í stærstu hópunum sem skoðaðir voru.27,29 Séu kollur hraktar sunnar af steggjum leiðir það til lengra og orkufrekara far- flugs fyrir kollurnar, sem gerir þær e.t.v. viðkvæmari fyrir óhagstæðum umhverfisskilyrðum. Hins vegar dregur aðskilnaður kynjanna úr samkeppni þeirra í milli þar sem kynin nýta ólíkar fæðugerðir.32 Þá eru mildari skilyrði syðst á út- breiðslusvæðinu hagstæð gagnvart orkuþörf yfir veturinn, og kemur það sér vel fyrir fugla neðst í virð- ingarstiganum, þ.e. óparaðar kollur og ungfugla.27,31 Athugað var hvernig endur á Ís- landi passa inn í tilgátur um dreif- ingu kynja að vetri til, þ.e. tilgáturn- ar um kuldaþolni kolla og yfirgang steggja. Báðar tilgátur spá (1) afar skekktu kynjahlutfalli anda að vetri til á Íslandi, enda er Ísland á norður- mörkum útbreiðslu flestra andateg- unda, og (2) hærra hlutfalli steggja að vetri til, miðað við varpfugla á sumrin. Kynjahlutföll algengustu anda á Íslandi voru því tekin saman og þau borin saman við erlendar niðurstöður23,29,33 og milli árstíða, þ.e. fyrir rauðhöfða (A. penelope), stokkönd (A. platyrhynchos) og æð- arfugl (Somateria mollissima). Fyrir stokkönd og rauðhöfða var notast við talningar á Innnesjum veturna 1997–1998 og 1998–1999 og tölur fyrir varpfugla frá Mývatni.22,34 Stokkönd er útbreiddasta andateg- und jarðar og mest til af gögnum um hana. Stokkönd var því notuð sem líkan til að kanna samband umhverfishitastigs við kynjahlutföll. Gerð var aðhvarfsgreining á kynja- hlutfalli stokkandar og meðalhita víða í Evrópu. Teknar voru saman upplýsingar um kynjahlutföll æð- arfugls á Íslandi og annars staðar á útbreiðslusvæði tegundarinnar.9,35,36 Rauðhöfði Rauðhöfði (1. mynd) er algeng andategund í Evrópu og Asíu sem á vetrarstöðvar sínar í Vestur- Evrópu, Norður-Afríku og Ind- landi.37 Kynjahlutföll tegundarinn- ar eru þekkt á Íslandi, Bretlandi og 79 1-4#loka.indd 119 4/14/10 8:52:13 PM
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.