Skagfirðingabók - 01.01.1980, Síða 158
ANNÁLL ÚR SKAGAFIRÐI 1932—35
eftir STEFÁN VAGNSSON
Á ÁRABILI.NU 1933—1945 sendi Stefán Vagnsson (bóndi á
Hjaltastöðum til 1941 en síðari ár bókhaldari á Sauðárkróki)
itarleg fréttabréf úr Skagafirði vestur um haf til Kanada, eins
konar annál áranna 1932—1944. Þessi bréf voru send Jóhannesi
Hannessyni frá Grund, a. m. k. framan af, en hann kom þeim
síðan til blaðsins Heimskringlu í Winnipeg, þar sem þau voru
birt, nema um árin 1939 og 1940, er sennilega hafa ekki kom-
izt á leiðarenda sökum heimsstyrjaldarinnar. Þar sem þessi
bréf eru hin bezta heimild um áðurgreint tímabil, hefur orðið
að ráði að endurbirta þau í Skagfirðingabók, enda hafa fremur
fáir af þeim vitao hérlendis. Mun efninu deilt niður í þrjár
bækur vegna lengdar sinnar.
Þá skal þess einnig getið, að Stefán ritaði skagfirzka árbók
1938—1943 fyrir sögufélagið, sem varðveitt er í Héraðsskjala-
safninu á Sauðárkróki. Er ekki ósennilegt, að þessi bréf séu
kveikjan að árbókinni, þar sem þau hefjast fyrr.
Hvað varðar birtingu bréfanna eða annálsins hér, þá hafa
frumritin ekki varðveizt, og er því farið eftir hinum prentaða
texta. Er hann efnislega óbreyttur, en felld hafa verið niður
ávörp og fleira, þar sem höfundur beinir máli sínu til les-
endanna vestan hafs. Því hefur orðið að hagræða orðalagi til
samræmingar á stöku stað, en að auki hafa verið leiðréttar aug-
ljósar villur, sem eru í prentuninni.
Ö. H.
1932
Eftir nýár kom hér nokkuð stirður kafli, hríðar og skak-
viðri, en alltaf var þó nóg jörð fyrir hross. En um miðþorra brá
156