Skagfirðingabók - 01.01.1980, Side 190
SKAGFIRÐINGABÓK
hafa fundið og verið það huggun í hörmungunum, hve sveit-
ungar hennar tóku innilegan þátt í sorgum þeirra hjóna. Guðrún
var jarðsungin frá Miklabæ, og var óvenju mikið fjölmenni við
jarðarförina, til að votta þessari ágætiskonu virðingu sína í hinzta
sinn.
Eg hefi, sem betur fer, sjaldan þurft að setja slysfarir í þessi
bréf mín, því lítið hefur verið um þess háttar hér. En nú bregður
mjög út af þeirri venju. Seinni part laugardags 14. desember síðast-
Iiðinn gerði eitt það mesta norðaustan veður, sem menn muna eft-
ir. Stóð það alla nóttina og langt fram á sunnudag. Var veðurhæð-
in sem í mesta hlákuveðri. Dagana áður, og allt fram á laugardags-
nótt, var mesta hægð og ágætis sjóveður og afli góður hér á Skaga-
firði. A föstudagskvöldið og nóttina eftir reru 5 bátar af Sauð-
árkróki. En er kom fram á laugardaginn, gekk hann upp með
ofsa stormi og stórhríð af norðaustri með fádæma sjógangi.
Einn báturinn komst ekki nema út undir Drangey, er hann var
að sækja á miðin, þar bilaði vélin. Sneri hann þar aftur. Var
það þeim til lífs, er á honum voru, því þeir náðu landi, áður en
brimið komst í algleyming. Þegar næsm tveir bátarnir komu,
var orðið ólendandi. Urðu þeir að fleygja afla. Fyrri bámr-
inn dældi út olíu, sem lægði sjóinn, svo hægt var að ná honum
á land. Seinni bámrinn var olíulaus, en með snarræði og lífs-
hætm var dælt út olíu af bryggjunni, svo hægt var á endanum
að bjarga bát og áhöfn.
Vantaði nú tvo báta. Voru 4 menn á öðrum, og formaður hans
var Bjarni Sigurðsson af Sauðárkróki, framúrskarandi sjósóknari
og aflamaður. Á hinum bátnum vom 3 menn. Var formaður hans
Sigurjón Pémrsson, ungur maður af Sauðárkróki, eins og þeir all-
ir á þeim bát. Voru menn orðnir hræddir um bátana, því enn óx
veðrið og brimrótið. Slokknuðu nú öll rafljós í kaupstaðnum, svo
ekki var hægt að gefa þeim neina vísbendingu, hvar þeir væru,
þó þeir kæmu inn á höfnina, er ekkert sást fyrir stórhríð og nátt-
myrkri. En alla nóttina vökm menn og voru á ferli með sjónum,
austur með öllum sandi, til að reyna að bjarga, ef ske kynni, að
188