Skagfirðingabók - 01.01.1980, Page 197
LÁ VIÐ STRANDI
eftir FREYSTEIN A. jónsson frá Ytra-Mallandi
Á miðjum engjaslætti árið 1929 sást skúta austur af
Húnsnesi á Skaga. Var hún með segl uppi, þó nærri væri logn og
gekk því lítið sem ekkert. Eldra fólk hélt þar væru Hund-Tyrkir
komnir til rána. En þeir yngri töldu farkost þennan ekki svo
stóran að hætta stafaði af honum.
Næsta dag hafði skútuna rekið innar og nær landi, og var
hún nú komin á móts við Ytra-Malland. Var nú farið að skoða
hana í kíki, og sást þá að þar voru menn á skaki. Lítill árabátur
hékk aftan í henni. Vakti það furðu manna, hve grunnt hún hélt
sig, því fiskur var meiri og stærri dýpra.
Þriðja daginn var hún á svipuðum slóðum. Þá var sunnudag-
ur. Tveir bræður fóru þá forvitnisferð um borð í hana. Það voru
Angantýr og Freysteinn Jónssynir Þorfinnssonar á Ytra-Mallandi.
Gerðu þeir sér það til erindis að kaupa af þeim öngla (hneifar).
Þegar þeir nálguðust skútuna, sáu þeir, að hún hét Tryggvi og
var úr Reykjavík.
Þegar um borð kom, fengu þeir að vita, að hún var vélbiluð.
Skipstjórinn hét Mýrkjartan Rögnvaldsson, en fiskiskipstjóri var
Sigmundur Þorgrímsson, ættaður úr Skagafirði. 14 menn voru
á Tryggva. Þeir voru á skaki úti á Skagagrunni, þegar skrúfan
losnaði, og var hugmyndin að komast á seglum, annaðhvort til
Siglufjarðar eða Sauðárkróks, og biðu þeir nú byrjar. Þeir spurðu,
hvar hægt væri að ná í síma, ef á þyrfti að halda. Næsta símstöð
195