Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Side 11

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Side 11
M a r g r a h e i m a s ý n TMM 2013 · 4 11 listar skóla. Ekki margir sem hafa þetta milliliðalausa samband við höf- unda miðaldarita. Handritin kenna okkur einnig að skrumið sem fylgir bókaútgáfu í dag er og verður stundarfyrirbrigði. Þau krefjast þess ósjálfrátt að þeim sé sýnd virðing, ekki vegna þess að þau trani sér fram í okkar menn- ingu og hrópi á athygli heldur þvert á móti vegna hins gagnstæða. Þau láta einstaklega lítið yfir sér og hafa aldrei þurft á neinni auglýsingamennsku að halda. Þau voru ekki skrifuð til þess að krefjast metsölu. Þau voru aldrei auglýst upp í rjáfur. Þau bitust aldrei um nein bókmenntaverðlaun. Þau eru bara þarna eins og fallegt landslag sem við þurfum stundum að minna okkur á að taka eftir þegar við eigum leið framhjá. Þau hafa alltaf verið eign þjóðarinnar. Ekki einstakra höfunda. Ekki bókasafnara. Ekki biskupa eða greifa eða danskra kónga. Ekki Árna Magnússonar eða Jóns Grunnvíkings. Þau eru eign Íslendinga. Þau hafa vissulega legið í erlendum söfnum og sum gera það enn en samt eru þau okkar. Sagt er að það taki sálina drjúgan tíma að snúa heim þegar við komum úr löngum ferðalögum. Þegar stærstu dýr- gripirnir komu aftur til Íslands þann 21. apríl árið 1971 var engu líkara en sálin í okkur yrði loksins heil eftir langt ferðalag. Og það var í rauninni ekki fyrr en þá að baráttu okkar fyrir fullu sjálfstæði lauk. Slíkan sess skipa hand- ritin í tilveru okkar. Við megum aldrei gleyma mikilvægi þeirra og verðum sífellt að halda þeim arfi sem þau varðveita að nýjum lesendum, nýjum kynslóðum, svo að ekki dragi úr þýðingu hans, hann falli í gleymsku eða verði afskiptaleysi eða áhugaleysi að bráð. Fornbókmenntir okkar eiga að spegla sig í þeim tíðaranda sem uppi er hverju sinni og vekja umræður og nýjar hugmyndir og þola stöðuga endurskoðun. Við höfum lengi horft til hins sigurreifa víkings þegar við ræðum fornsögurnar. Samfélagsgerðin var hins vegar mun flóknari en mynd víkingsins gefur til kynna. Meðal þeirra sem komu til landsins í öndverðu voru karlar og konur með ólíkar trúarhugmyndir og af ólíkum þjóðfélagsstigum, svo vitnað sé aftur í orð Gísla Sigurðssonar í nýrri bók hans, Leiftur á horfinni öld. Hann bætir við: „Með því að jafna kynjahlutföll og hampa fjölmenningunni meðal landnámsmanna getum við breytt hinni gömlu staðalímynd sem horfði fyrst og fremst með aðdáun til vopnaðra norrænna víkinga standa uppi í stafni að höggva mann og annan og trúa á mátt sinn og megin.“ Þannig geta fornsögurnar speglað nútíma- samfélagið í öllum sínum fjölbreytileika. Handritunum var ekki bjargað frá tortímingu til þess að þau gætu orðið ósnertanlegar skrautfjaðrir. Við megum aldrei láta eins og þau gegni aðeins hlutverki í lífi okkar á sérstökum tyllidögum. Við megum aldrei fá það á tilfinninguna að þau séu aðeins fyrir spekinga í fornfræðum sem setja á sig hvíta hanska varðveislunnar og opna þau varlega eins og líkskurðarmenn myndu opna dauðan skrokk. Þeim var ekki bjargað til þess að einangra þau frá fólki. Sá fjársjóður sem þau geyma eru sjálft fólkið. Tungumál þess. Veröld þess og vitund.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.