Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Side 21

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Side 21
D v e r g a r o g s t r í ð TMM 2013 · 4 21 Ég ek löturhægt framhjá slysstaðnum, framhluti bílsins er horfinn líkt og skógurinn hafi gleypt hann. Úti í vegkantinum er annar lögreglumaður í endurskinsvesti, ég sé hann taka upp fótlegg af götunni, hann er í karlmannsskóm og svörtum sokkum. Lögreglumaðurinn heldur á fótleggnum rétt við bílinn minn og notar hina höndina til að beina mér áfram. (Afleggjarinn, bls. 106) Mig langar í sambandi við skó að víkja að atviki sem átti sér stað í síðustu viku þegar Íslendingar misstu af einstæðu tækifæri til að hafa áhrif á heims- málin. Og í beinu framhaldi langar mig til að velta því fyrir mér hvort það sé munur á því þegar íslenskur rithöfundur fer til útlanda eða íslenskur ráðherra. Eða með öðrum orðum hvort rithöfundur hefði tæklað það vandamál öðruvísi að vera illt í fæti þegar hann hitti valdamesta mann heims til að ræða napalmbrennd börn í Sýrlandi? (Ég vil þó taka það strax fram að ég tel ekkert athugavert við það að vera í strigaskóm eða söndulum eða hvaða hentugum skóbúnaði sem er þegar manni er illt í fæti.) Hvað til dæmis ef við skiptum forsætisráðherra út fyrir borgarstjóra sem vill svo skemmtilega til að er rithöfundur og hefur tekið að sér að vera málsvari erfiðu málanna sem fáir nenna að sinna, mannréttinda – og friðarmála. Spurningin felur í sér aðra spurningu sem er sú hvort einhver von sé til þess að dvergþjóð geti átt sér eigin rödd í hinu stóra samhengi útlanda? Ég held að það þurfi hvorki íslenska sendinefnd né túlkaþjónustu til að segja; „Mister president we Icelanders are worried about Syria but we are ready for war if everyone else is.“ Öðru máli hefði gegnt ef fulltrúi okkar hefði haft hugmyndaflug til að notfæra sér þá sirka sjö mínútna athygli sem fjölmiðlar heimsins hefðu sýnt manni í hans stöðu, skæddum fjólubláum strigaskóm á báðum fótum. Og hvaða skilaboðum hefði hann getað komið áleiðis til heimsins (fyrir utan að benda á það að hann kæmi frá herlausri þjóð, að hann hefði áhyggjur af áhrifum af bráðnun heimskautanna á Golfstrauminn og losun geislavirks úrgangs á norðurslóðum, svo nefnd séu nokkur þeirra mála sem hljóta að brenna hvað mest á þjóð hans)? Já, hvað hefði hann getað sagt? Í stað þess að draga athygli að bágtinu sínu hefði hann til dæmis getað dregið athygli að bágti heimsins og sagt: „Mister president; það felst meira hugrekki, meira andlegt þrek í fyrirgefningu og kærleik en í hefnd.“ Svo haldið sé tryggð við bókmenntirnar má benda á að þar hefði hann verið í ágætum selskap þekktra persóna á borð við Myshkín í Fávita Dostojevskís sem tókst á við grimmd og undirferli með góðmennsku sinni. Hann hefði getað bætt við: blóð kallar á meira blóð, sjáðu Macbeth, eða heldurðu að loftárásir séu svar við siðblindu og sálarangist í heiminum? Nei, hættu nú alveg, hvað rithöfundar geta verið barnalegir, segja menn nú. Þar spyr ég á móti: er ekki búið að þrautreyna allt annað eða hvað hefur verið stofnað til margra stríða á þessari öld til að verja friðinn? Tuttugu og sjö? Fjörutíu og sex? Man ég ekki rétt að það séu tuttugu og tvö núll á eftir milljónum dollaranna sem hergagnaiðnaðurinn veltir árlega í heiminum?
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.