Tímarit Máls og menningar - 01.06.2017, Blaðsíða 104
Á r n i B e r g m a n n
104 TMM 2017 · 2
og trúvarnaritin. Enn fleiri lesa bæklinga og greinar og lærisveinar bera orð
meistara síns út um allar sveitir til hinna ólæsu. Allt hefur þetta sín áhrif á
hugarfar og gildismat, grefur undan sjálfstrausti yfirstéttarfólks en hressir
þá sem umskipti vilja.
Tolstoj getur náð til manna mun betur en framúrstefnubókmenntir eins
og þær sem fútúristar settu saman:
Í fyrsta lagi vegna þess að framandlegar tilraunir með form hrundu
mönnum ekki frá honum. Hann heldur sig við klassískt skáldsöguform
og fortölulist sem á að vera flestum mönnum aðgengileg og byrjar aldrei á
að segja við públíkum „þið eruð asnar“ – eins og framúrstefnumenn gerðu
blygðunarlaust.
Í öðru lagi nær hann vel til fólks vegna orða sinna „svona er ekki hægt að
lifa lengur“ sem eru sögð í nafni kristindómsins og þá einmitt þess félagslega
þenkjandi kristindóms sem gerði sem allra mest úr boðorðinu „far þú og sel
eigur þínar“. Þetta var gamalkunnur boðskapur sem Tolstoj herti á með því
að hamast um leið á móti kirkjunni sem hann kvað falsa boðskapinn með því
að réttlæta eignarréttinn (Jesús hafði sagt að ríkur maður ætti ekki heima í
guðs ríki); herskylduna (gegn boðorðinu: þú skalt ekki mann deyða) og loks
dómstólana (refsingar stríða gegn boðorðinu: dæmið ekki). Allar hans rök-
semdir fengu aukið vægi í krafti þess að það mátti rekja þær til Krists sem
var eini aðili mála sem allir Rússar vissu eitthvað um. Þær gengu um leið í
félag við skáldskapartrúna í landinu sem þýddi að menn voru reiðubúnir til
að treysta því að einmitt stórskáld eins og Tolstoj gæti frelsað boðskap Krists
undan afskræmingu og falsi ríkisvalds og opinberrar kirkju. Boðun hans var
einatt á þessa leið, svo vitnað sé til dagbókarskrifa hans í febrúar árið 1895:
Það er ekki hægt að brjóta ofbeldi niður með ofbeldi – þá eflir maður afturhaldið.
Ekki getur maður heldur gengið í þjónustu stjórnvalda – þá verður maður tæki í
höndum stjórnarinnar. Aðeins eitt er eftir: að berjast við stjórnvöld með vopnum
hugsunarinnar, orði og lífsháttum, láta ekki undan kröfum þess og ganga ekki til
liðs við það. Þetta eitt er nauðsynlegt og mun að líkindum bera árangur. Og þetta er
það sem Guð vill og Kristur kenndi.
Í þriðja lagi heyrðist vel til Tolstojs vegna þess að bændurnir, sem voru þá
meirihluti þjóðarinnar, höfðu aldrei sætt sig við eignarrétt óðalsherra á
landi. Þeim fannst alltaf að það væri höfuðranglæti og reginsynd að þeir
menn ættu landið og hirtu ágóða af því sem ekki ræktuðu það sjálfir. Þess
vegna voru í Rússlandi afar góð móttökuskilyrði fyrir boðskap manns sem
var sjálfur bæði greifi og landeigandi en sagði afdráttarlaust að það væri
skylda kristinna manna, eins og Rússar vildu vera, að gefa öllum heimi
göfugt fordæmi með friðsamri byltingu sem afnemur einkaeignarrétt á
landi. Hann bætti því reyndar við að ef slík friðsamleg bylting verður ekki
þá fáum við Rússar yfir okkur blóðuga byltingu.
Gáum einnig að því hve vel boðskapur Tolstojs samræmist þeirri rússkaja