Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Page 13
H n e f i b e i t i r h e i ð a r l e g r a o f b e l d i
TMM 2017 · 4 13
Það er dálítill munur þar á já.
Heyrðu, ég tek til baka: maður verður dapur af að hugsa ekki um dauðann!
Af hvernig hljóðum hrífstu?
Viðarhljóðum. Og skinnhljóðum. Trumbuhljóðum. Núna er ég líka hrifin
af sækadellik hljóðum og sækadellik rokki, 13th Floor Elevator og Exuma –
Exuma var tónlistarmaður frá Bahama. Svo er ég hrifin af bjölluhljóðum ef
þær eru ekki of skærar, silfurbjöllum og hljóðum úr vindhörpum.
Mm, hvaða hljóð þolir þú ekki?
Ég á erfitt með suma ambient-teknó tónlist, ekki vegna þess mér þyki hún
asnaleg – ég verð bara grunndöpur. Ákveðna tegund af popptónlist höndla ég
illa og viss tónlist með mikilli ákefð, miklum skala og ýktri raddbeitingu. Það
er einsog verið sé að segja mér eitthvað sem ég vil ekki heyra. Margt er flott
sem hefur ákefð og skala en ekki ákefð og skali sem búinn er til af vanefnum.
Við hvaða annað starf myndir þú kjósa að vinna?
Í allan dag gæti ég talið upp það sem ég myndi ekki vilja gera.
Það er næsta spurning: og alls ekki vilja vinna við?
Ég get ekki keyrt bíl í vinnu því ég hef ekki bílpróf. Ég vildi helst ekki
mæta snemma á morgnana eða á stað þar sem ég þyrfti að díla við margt
fólk. Kannski gæti ég orðið næturvörður en þá færi ég kannski að hugsa of
mikið eins og maður gerir á nóttunni og það væri kannski ekki nógu gott.
Hver er uppáhaldsliturinn þinn og -blóm?
Blár. Bláklukka.
Uppáhaldsfugl?
Uppáhaldsfuglinn minn er snjótittlingur. Eða auðnutittlingur, einhver
tittlingur.
***
Hvernig barn varstu? Óþekk, stillt.
Ég veit það ekki – ég hef hugsað mikið um það sem er sett á barn, hvernig
barni er sagt hvernig það er og var og ég held ég hafi ekki verið sú sem mér
var sagt frá eftirá að ég hafi verið. Þegar maður er barn er maður opinn –
maður er ekki orðinn – maður er alveg tær. Ég var örugglega skemmtileg,
uppátækjasöm og áhugasöm.
Hvernig unglingur?
Þú kynntist mér þegar ég var unglingur.