Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Side 19
H n e f i b e i t i r h e i ð a r l e g r a o f b e l d i
TMM 2017 · 4 19
oní bolnum hans gamla og þvegna af svefni hans og svita. Húðflúruð kónguló
skríður uppúr hálsmálinu.“ (27).
Lyktin oní bolnum … mjög flott orðað, fíngert og áþreifanlegt …
Já, ég bjó í Danmörku þegar ég byrjaði að skrifa Kjötbæinn og var tekjulaus
og vann stundum svart á bar. Ég var nítján, tuttugu ára, var í Tækniskólanum
í Kaupmannahöfn, óskráð og fékk að mæta og vera í tímum. Svo komst ég inn
í Listaháskólann og var síðan skiptinemi í Berlín í hálft ár og notaði tímann
til að klára þessa bók. Mér finnst það mjög skrítin bók.
Mér finnst hún æðisleg. Kata hverfur úr bókinni á baki jakuxa sem búinn
er til úr neoni og jakuxaneonið býr til auglýsingaskilti og tússpenna; það
þarf einn dropa af því til að lýsa heila stórborg … Draugalest ræsir næstu
bók: Húðlitaða auðn (2006). Hér býr par í höll í eyðimörk og ber húðlitaðar
kórónur. Myndirnar verða óhugnanlegar og ævintýralegar. Mörk milli
líkama og umhverfis hverfa æðisgengið. Eyðimörk, hallargarður, fótleggur
í gallabuxnaskálm í súpermarkaði, snoðaðir hestar, hjólhýsi, tungur og
hnífar og hiti sem afskræmir, ævintýri um konunginn og græna apann …
Já, ég var í rosa mikilli ástarsorg þegar ég skrifaði bókina og bjó í Granada
á Spáni ásamt norskum myndlistarmanni sem nú er látinn og hét Simen
Dyrhaug og var mjög góður vinur minn. Við vorum í miklu rugli, hann bjó
til batík í baðkarinu og geðveikar innsetningar í hellaumhverfinu sem liggur
í kringum Granada þar sem Rómafólk býr. Hann var ný útskrifaður úr lista-
skóla í Bergen og ég skrifaði bók númer tvö. Það var voða gaman hjá okkur.
ég er ástfangin af fimmþúsund ára gamalli múmíu
tungan svo þurr svo skorpin og kitlar
á sunnudögum leiðumst við um Mjódd
borðum ís og flissum
hamingjan!
(bls. 28 úr Ástin og eilífðin í Annars konar sælu)
Ljóðaflokkinn Stóri hvíti maður í Annars konar sælu (2008) heyrði ég fyrst
í upplestri þínum og fannst magnaður – pólítísk og beitt bölbæn. Hér eru
líka mikil átök, t.d. í nánum samskiptum, aggressjón, ofbeldi.
Maður / ég þrái þig / þrái að hneppa þér niður / einsog skyrtu
Rosaflott –
Jamm, þá var ég nýkomin úr meðferð og ég skrifa hana á síðasta árinu
mínu í frekar mikilli neyslu og lauk henni á fyrsta árinu eftir að ég var orðin
edrú. Hún er myrk.