Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Side 36

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Side 36
S i g u r j ó n Á r n i E y j ó l f s s o n 36 TMM 2017 · 4 sig upp á, smyrja höfuð sitt olíu og njóta víns. Og loks er það, sem á líka við alla daga, sem er að njóta lífsins með þeim „sem þú elskar“. Prédik arinn vísar hér óneitanlega til vægis þess að búa með maka sínum. Ritskýrendur vísa til þess að Prédik arinn kenndi ógiftum ungum mönnum og þess vegna sé ekki tekið sérstaklega fram að um maka þeirra væri að ræða, þó það sé inntakið.33 Matur, tilbreyting og samfélag móta ekki bara allt líf manna, heldur eru rými blessunar Guðs. Þó að bæði hamingjan og ánægjustundir lífsins séu undir fallvaltleikann settar dregur það ekkert úr vægi þeirra. Prédik arinn kveður skýrt á um að virða gjafir Guðs með því að njóta þeirra. Hér er fyrir hann ekkert af eða á, okkur er hreinlega skipað: „Farðu því“ og lesandinn hvattur: „et […] með ánægju […] drekktu […] [n]jóttu“ og „gleðstu“ (Pr 3.22). Hebreska orðið sem býr að baki þýðingunni „með ánægju“, þýðir glaður í hjarta og í fullvissu.34 Þess ber að geta að brauð og vín heyrðu til grunn- næringar fólks í Ísrael. Prédik arinn er hér með allt aðra áherslu en þá sem er að finna í fyrstu Mósebók, um að maðurinn eigi að neyta brauðs síns í svita síns andlits (1Mós 3.19). Vissulega er vinnan oft erfið og lífið þverstæðufullt, eins og kom fram í fyrri hlutanum, en það á ekki að varpa skugga sínum á ánægjuefni lífsins. Í fornöld voru hvít klæði hátíðarklæðnaður, líkt og jakkaföt og síðir kjólar eru í dag. Sama á við um olíuna. Hún tilheyrði grunnþörfum fólks og var mikilvæg í líkamlegri umhirðu. Hún hlífði húðinni fyrir geislum sólarinnar, þurrki, kulda, sandi, flugum og biti. Yfirleitt notaði fólk ólívuolíu, en einnig fínni olíur sem bætt var í ilmefnum. Þær þjónuðu svipuðu hlutverki og ilm- vatn og rakspíri í dag.35 Í fyrri hluta Prédik arans var fjallað um vægi þessara þátta án tengsla við Guð og niðurstaðan varð þá að allt væri hégómi og eftir- sókn eftir vindi en lífið fái merkingu og sitt hversdagslega vægi hér og nú, í tengslum við Guð.36 Hamingjan felst sem sé ekki í því að svipta hulunni af ókominni framtíð eins og heimsslitafræðingar álíta eða óljósri fortíð, til að binda sig og helst aðra við reglur sem menn álíta að þar sé að finna. Þetta eru þekktar aðferðir móralista allra tíma og gera lítið annað en að svipta núið merkingu sinni og þeirri ánægju sem þar er þó hægt að finna og njóta. Prédik arinn hafnar slíku og vísar til hversdagsleikans og nautna hans. Þar er blessun Guðs að finna m.a. í mat og drykk, brauði og víni, og um fram allt í samfélagi með öðrum sem er hvergi eins náið og með maka sínum. Þetta er kjarni carpe diem guðfræði Prédik arans. Margur gæti spurt: „Er þetta allt og sumt?“ Já, því það er heilmikið að greina blessanir Guðs mitt í hversdagsleik- anum og gangast við þeim! Því þakklæti fyrir okkar hverfulu hamingju getur gert veruleikann að paradís þó um stund sé. Og ekkert er áunnið með því að rífa þá sýn niður með mórölsku þunglyndishjali þeirra sem eru í „raunsýni“ sinni þegar upp er staðið staurblind á gjafir Guðs. Enda segir segir Jesús um slíka aðila á einum stað:
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.