Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Page 82
82 TMM 2017 · 4
Scientewic Dezceptlow
Hinstu færslur úr
leiðarbók Scientewics
Dezceptlow kapteins*
Uggi Jónsson þýddi
Faxaflóa, 24. apríl 1952
Það var löngu tímabært að ég tæki upp úr sjóferðakistunni gamla fjaðra-
haminn.
Til stórra muna hressti það mig að finna háloftin leika um kroppinn og best
af öllu var súldin, þó varla nema á þrjátíu faðma kafla, sem hvolfdist yfir mig
eina örskotsstund, þegar ég var staddur nokkrar sjómílur vestur af Álftanesi.
Stuttu síðar kom upp að hlið mér svartbakur og hann var fljótur að reikna,
gargaði til mín á ensku, sjálfsagt verið eitthvað á Suðurnesjum: I hope you’ll
find your way. Að svo mæltu herti hann vængjatökin og stakk mig af.
Brátt flaug mér í hug löngu glötuð slóð og fljótlega upp úr því fataðist mér
flugið.
Faxaflóa, 12. maí 1952
Enn norpa ég í hafskorpunni, í dag sem í gær og dagana marga og marga þar
á undan. Það er furðanlega lítil skipaumferð hér. En ég hef þó félagsskap af
múkkunum. Flotþol fjaðranna er miklum mun meira en mig eða nokkurn
mann gat grunað, langtum meira en lýsingarnar í leiðbeiningunum gáfu til
kynna.
* Enn muna fáeinir eldri Reykvíkingar nokkuð vel eftir Dezceptlow kapteini, enda setti hann í
nokkur misseri allsérstæðan svip á miðborgarlífið um miðja tuttugustu öldina. Einkum þótti eftir-
tektarverður hinn skrautlegi farkostur hans, smáskipið Phenomenia, sem lá við Ægisgarð um árabil.
Það var gert upptækt vorið 1953 vegna vangoldinna hafnargjalda og selt úr landi – sem var að segja
má fyrirhyggjuleysi, því að sögn mætra manna sómdi það sér vel að öllu leyti og var til meiri prýði
í hafnarlandslaginu en flest annað sem þar bar fyrir sjónir, að Hegranum ólöstuðum. Dezceptlow
kapteinn hafði af einhverjum ókunnum orsökum horfið ári áður, en á öndverðum sjöunda ára-
tugnum rak vatnshelda leiðarbók hans á land skammt vestur af Vogum á Vatnsleysuströnd og var
henni með tíð og tíma skilað til ættingja hans í Póllandi. Það var svo rúmlega hálfri öld síðar sem
leyfi fékkst til að þýða og birta úr henni hinstu færslurnar og eiga afkomendur Dezcept lows kapt-
eins fyrir það þakkir skildar. Þeim mun ekki síst hafa komið á óvart enskukunnáttan sem þeim var
ókunnugt um að kapteinninn byggi yfir (eitthvað mun hann reyndar hafa dvalið á Suðurnesjum),
en jafnframt voru þeir fullir stolts yfir þrautseigju forföður síns. [Þýð.]