Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1966, Blaðsíða 171
— 169
1966
bátum, fyrst frá Reykjavík en síðan víðar. Hefur hann síðan verið
við sjósókn, síðustu 5 árin í Keflavík.
I Keflavík kynntist hann konu sinni. Fóru þau fljótlega að búa sam-
an, en giftust ekki fyrr en fyrir einu og hálfu ári. Eiga þau 3 börn,
dreng 5 ára, telpu 4 ára og dreng 2 ára.
Sem heimilisfaðir og fyrirvinna hefur P. reynzt fjarska óábyggilegur
og kærulaus. Ef hann hefur sig ekki í vinnuna einn dag, sem svo sem
meira en kemur fyrir, er að sjá, að hann eigi mjög bágt með að mæta
aftur. Árangurinn hefur verið sá, að hann hefur oft skipt um vinnu
og verið hverfull og óstöðugur.
Samkomulag hefur þrátt fyrir þetta verið furðu gott á heimilinu.
Óregla hefur ekki háð P. teljandi. Hann hefur drukkið í mesta lagi
einu sinni á tveimur mánuðum eða svo, en þá oft býsna illa og oft svo,
að hann veit ekkert, hvað hann gerir eða segir, hvað þá heldur að hann
muni nokkuð um það eftir á. Hefur hann oftar en einu sinni lent í
handalögmáli við slíkar aðstæður og tvívegis „tekinn úr umferð."
Innan um fólk er P. talinn hafa verið heldur óeðlilegur, þvingaður,
fámáll. Gagnvart konu sinni er hann mjög afbrýðisamur, svo að hún má
ekki líta á karlmenn, hvað þá heldur tala við þá ,,í léttum tón“, þykir
honum það hneykslanlegt athæfi.
Samkomulag þeirra á milli hefur verið heldur gott þrátt fyrir allt.
Að vísu hefur hjónaskilnað borið á góma, og mætti segja, að það
væri ekki að undra miðað við það, hve takmarkaður og óöruggur
P. hefur reynzt til fyrirvinnu. Hefur hann yfirleitt brugðizt hinn
versti við öllu slíku tali, hótað þá að kveðja í „eitt skipti fyrir öll“,
hvað sem í því orðalagi hefur átt að felast.
Um atburð þann, er varð til þess, að P. var úrskurðaður í geðrann-
sókn, segist hann muna sáralítið.
Hann hefur unnið austur við Búrfell s.l. 3 mánuði. Hefur hann komið
í bæinn á helgum. Fór hann austur 7. janúar s.l. að kvöldi, en þegar
hann ætlaði til vinnu um morguninn, fann hann, að hann var orðinn
veikur, svo að hann tolldi varla á fótum.
1 fyrsta viðtali segir hann svo, að hann hafi legið alla vikuna með
meira og minna háan hita, upp undir 40°, en kona hans segir, að lækn-
irinn hafi ætlað að banna P. að fara í bæinn næstu helgi, en hann farið
engu að síður.
I framhaldsviðtali kemur fram, að P. var veikur alla vikuna, en
mældi sig ekki, og enginn læknir leit til hans. Hins vegar var hann
með höfuðverk og beinverki, og verkstjóri hans staðfestir, að hann
muni hafa verið veikur.
Laugardaginn 13. janúar (eða öllu heldur kvöldið áður) kom hann
svo með langferðabíl að austan eins og venjulega í helgarleyfi. Kon-
unni skildist, að hann hefði farið í óleyfi læknis þar, eins og að framan