Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1966, Blaðsíða 153
— 151 —
i%i;
löngun til þess að láta á sér bera, að halda sér fram. Hafi snemma
komið í ljós, að hann hafi verið frekar grófur í framkomu, jafnvel
hrottafenginn, þó ofbeldislaus væri. Hafi hann viljað einn öllu ráða
í sínum hópi og orðið ókvæða við, ef haft var á móti því, sem hann
sagði eða vildi. Hafði borið talsvert á því, að hann hafi verið allheift-
rækinn, eins og hann væri meira og minna alltaf að reyna að ná sér
niðri á einhverjum og verið umtalsillur mjög. Hafi hann átt fáa vini,
ef þá nokkra, en marga kunningja, sem hann stjórnaði með harðri
hendi. Alltaf hafi verið eitthvað að ske í kringum hann, hann hafi verið
duglegur við hvaðeina, sem hann sneri sér að, og jafnvel næstum ofsa-
fenginn og drifið þá aðra með sér.
1 samræmi við þetta var svo, að þegar hann sneri sér að náminu,
gat hann verið harðduglegur og sýndi það enda á pörtum og gat þá verið
með hinum efstu, en þegar að stúdentsprófi kom, var hann með þeim
lægstu, eins og að framan getur.
Varla mun óregla hafa valdið þessu, því hún getur ekki talizt að hafa
verið nein að ráði, þótt hann að vísu hafi þótt einna verstur með það
í sínum bekk.
Tengsl voru þó nokkur með bekkjarfélögunum fyrst eftir stúdents-
prófið, en síðan smáfjaraði það út. Þ. var talsvert með og enda all
ráðandi og áberandi, og voru það enda, að manni skilst, einu forsend-
urnar fyrir því, að hann héldist við í hópnum. Var eins og félagarnir
væru alltaf hálfhræddir við hann og létu kúgast.
Þegar því var að skipta, gat Þ. sett upp fjarska kurteislegan svip
og ofurheflaða framkomu, þótt hann væri, að því er virtist í eðli sínu
og þegar ekkert stóð til, grófur, óheflaður, jafnvel „brútal".
Eftir stúdentspróf 1949 var Þ. svo að mestu í Reykjavík og settist
í lagadeild Háskóla Islands. Lauk hann prófi þaðan 1957. Alltaf vann
hann meira og minna jafnframt námi, fyrst á opinberri skrifstofu, en
síðan hjá heildsölufyrirtæki. Átti hann einnig þátt í stofnun verk-
fræðifyrirtækis nokkurs. 1953 stofnaði hann með nokkrum félögum
eigið fyrirtæki, . . . ., og var hann þar stjórnarformaður, en keypti það
síðan að öllu 1960. Auk þess hefur hann starfað sem lögfræðingur,
eftir að hann lauk prófi.
Ekki mun Þ. hafa drukkið meira en almennt gengur og gerist, meðan
hann var við háskólanám.
1953 kvæntist hann H. heitinni, og þau eignuðust 4 börn. Heldur Þ.
því fram, að í byrjun hafi hún jafnvel heldur hvatt hann en latt að
„slappa af“ við glas af víni, en eftir fæðingu fyrsta barnsins hafi
þetta snarbreytzt. Hefði hún að lokum þvertekið fyrir, að hann kæmi
heim undir áhrifum áfengis. Þegar það kom fyrir. hafi hún orðið gjör-
samlega æf, jafnvel allt að því frávita, stundum a. m. k., og jafnvel
brugðið á sig hnífi. Þessi atriði verða hvorki sönnuð né afsönnuð, því
að það, sem Þ. vitnar til, eru hlutir, sem fara fram milli þeirra tveggja