Hugur - 01.01.2018, Page 21

Hugur - 01.01.2018, Page 21
 Vitnisburðarranglæti 21 og sér réttlætt að beita félagslegu valdi með svo áþreifanlegum hætti. Aftur á móti er ímyndarvaldið sjálft af óefnislegum toga – eitthvað algjörlega orðræðu- eða ímyndunarbundið vegna þess að það er að verki á sviði sameiginlegra hugmynda um hvað fylgi því að vera aðalsmaður eða alþýðumaður, þ.e. sviði ímyndaðra fé- lagsímynda. Ímyndarvald er því aðeins ein hlið þeirra flokka félagsímynda sem tilheyra t.d. stétt eða kyngervi þar eð þeim tengjast bæði efnislegir þættir sem og ímyndunartengdar hliðar. Er hægt að sjá fyrir sér alfarið formgerðarbundna beitingu ímyndarvalds? Vissulega er það hægt, enda tekur ímyndarvald oft á sig alfarið formgerðar- bundna mynd. Ef við skoðum aftur dæmi um réttleysi, má hugsa sér hóp sem með óformlegum hætti nýtur ekki kosningaréttar vegna tilhneigingar sinnar til þess að sitja heima sem stafar af sameiginlega ímyndaðri félagslegri sjálfsmynd hans um að meðlimir hans séu þess eðlis að þeir hvorki ræði né leiði hugann að stjórnmálum. „Fólk eins og við er ekki pólitískt“ – og því tekur það ekki þátt í kosningum. Að sama skapi getum við ætlað að meðal þeirra þjóðfélagshópa sem nýta kosningaréttinn skipti ímyndarvald einnig máli. Það sem hvetur mörg okkar til að kjósa er að hluta sjálfsmyndin í þeirri sameiginlegu ímyndun að „fólk eins og við lætur sig stjórnmál varða“. Ímyndarvald getur, rétt eins og gildir almennt um félagslegt vald, ýmist verið gerandatengt eða alfarið formgerðarbundið; það getur verið jákvætt í þeim skilningi að leiða til athafnar eða neikvætt ef það kemur í veg fyrir hana; og það getur verið í þágu gerandans með því að stjórna athöfnum hans eða unnið gegn honum. Ástæða þess að hér hefur verið svo mikið rætt um ímyndarvald er sú að ætlunin er að kanna hvernig það fléttast við þá tegund málrænna samskipta þar sem mæl- andinn miðlar þekkingu til hlustandans, þ.e. við vitnisburðarskipti (e. testimonial exchange) í sem víðustum skilningi. Ég mun færa rök fyrir því að ímyndarvald sé óaðskiljanlegur hluti af gangverki vitnisburðarskipta vegna þess að hlustend- ur þurfa að nota félagslegar staðalmyndir sem leiðsögureglur (e. heuristics) þegar þeir meta ósjálfrátt trúverðugleika viðmælenda sinna. Það getur verið með öllu viðeigandi að byggja þannig á staðalmyndum, eða villandi, allt eftir því hvaða staðalmynd á í hlut. Ef í staðalmyndinni felast fordómar gegn mælandanum gerist tvennt: Skiptin fela í sér þekkingarfræðilega röskun – hlustandinn gerir óþarflega lítið úr trú- verðugleika mælandans og fer fyrir vikið hugsanlega á mis við ákveðna þekkingu; um leið er breytni hans siðferðilega ámælisverð – og að ósekju er grafið undan hæfni mælandans til að búa yfir þekkingu. Ég mun nú snúa mér að þessari röskun sem er bæði af meiði þekkingar og siðferðis og einbeita mér að því sem er e.t.v. mikilvægasti siðferðilegi og félagslegi þátturinn í því hvernig ímyndarvald mótar orðræðu- og þekkingartengsl okkar og reyna að draga upp mynd af þeirri tegund ranglætis sem því tengist, þ.e. vitnisburðarranglæti. Hugur 2018meðoverride.indd 21 24-Jul-18 12:21:21
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.