Hugur - 01.01.2018, Side 53

Hugur - 01.01.2018, Side 53
 Sextos Empeirikos og pyrrhonsk efahyggja 53 lesendur um það sem honum virðist eða sýnist vera raunin (gr. ta fænomena) – með öðrum orðum hverjar sýndir hans séu (gr. fantasía) – en þessi upplýsing tjáir þó alls ekki skoðun hans. Hann byrjar á því að segja sögu, eins konar upprunasögu efahyggjumanna. Þeir leita að hugró, eða öllu nákvæmar að því ástandi sem einkennist af fjarveru hugarvíls (gr. ataraxía). Þetta er markmið þeirra. Það vill svo til að þeir ná þessu markmiði sínu. Skýringin á því er einmitt sú að þeir hafa engar skoðanir, og gæti svo virst sem skoðanir væru uppspretta hugarvíls og angistar. Sextos útskýrir þetta ferðalag efahyggjumanna. Hann kynnir til sögunnar jafnan styrk, jafnvægi eða það jafngildi (gr. isosþeneia) sannfæringar eða trúverðugleika sem ósamrýman- legar sýndir sömu hlutanna hafa til að bera sem og greinargerðirnar fyrir þessum sýndum, þær greinargerðir sem ætlað er að afhjúpa og útskýra sannleika sýnd- anna. Þetta jafngildi neyðir efahyggjumanninn til að halda dómum sínum í skefj- um, fresta dómi um hvaðeina. Í kjölfar þessarar dómsfrestunar (gr. epokhē) siglir að sögn hugróin. Hann lýsir því einnig á hvaða grundvelli efahyggjumaðurinn breytir, enda hafi margir talið að breytni krefðist skoðana, en ef skoðanir skorti verði alls ekki breytt. Loks segir hann frá því hvernig það vill til að efahyggjumað- urinn öðlast hugró. Þessar eru útlínur efahyggjunnar. Efahyggjurökin sem má lesa hjá Sextosi hafa mörg hver haldið krafti sínum í gegnum aldirnar og haft mikil áhrif á heimspekinga, ekki síst á fyrri hluta nýaldar.6 Svo skrifar David Hume: „Hin ákafa skoðun þessara margbrotnu mótsagna og ófullkomleika mannlegrar skynsemi hefur leitað svo á mig og hitað heila minn svo mjög, að ég er reiðu- búinn að hafna allri skoðun og rökræðu, og álíta ekkert sennilegra eða líklegra en annað.“7 Þáttur hugróarinnar hefur ekki heillað jafnmikið, þótt þessi hugró sé í raun upphaf og endir pyrrhonismans. Það hefur verið lagt til að angistin sem efahyggjumennirnir vildu flýja væri mun líklegri niðurstaða efahyggjunnar en einhvers konar hugró. Reyndar sagði téður David Hume um pyrrhonistann: „Hann hlýtur þvert á móti að fallast á það, ef hann fæst þá til að fallast á nokkurn hlut, að úti væri um allt mannlegt líf ef kenningar hans yrðu stöðugt og alls staðar ríkjandi; þá yrðu allar umræður og öll verk úr sögunni og mannlífið félli í algert dá uns skortur á náttúrulegum nauðsynjum byndi enda á eymd þess.“8 Samkvæmt Hume voru það alls engin rök heldur einungis lífið sjálft sem hrakti pyrrhonska efahyggju. Hver er þessi hugró sem efahyggjumennirnir leita? Öllu heldur: Hvert er vílið sem þeir vilja forðast? Efahyggja þeirra á uppruna sinn í vílinu sem þeir upplifðu þegar þeir sáu þversagnakennt reiðuleysi hlutanna, hinar margbrotnu mótsagnir Humes, og vissu ekki hvaða lýsingar og skýringar á heiminum skyldi samþykkja og hverjum skyldi hafna (PH 1.13). Þetta var vitsmunalegt víl, þekkingarfræðileg angist, sem ýtti þeim út í rannsóknir á eðli eða náttúru hlutanna, því þeir vildu vinna bug á vílinu með því að komast að sannleika málsins. Sextos gefur í skyn að um. Um tengsl Sextosar við sjálfan Pyrrhon (365/60–275/70 f.Kr.), sem efahyggjan var kennd við allt frá 1. öld f.Kr., sjá Bett 2000 og Svavar Hrafn Svavarsson 2010. 6 Um áhrif efahyggju á nýöld, sjá Popkin 2003. 7 Svo segir í Ritgerð um mannlega náttúru I.iv.7, þýðing höfundar; sjá Hume 1978: 268–269. 8 David Hume 1999: 261. Hugur 2018meðoverride.indd 53 24-Jul-18 12:21:23
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.