Hugur - 01.01.2018, Side 103

Hugur - 01.01.2018, Side 103
 Dýrin, skynsemin og hið samúðarfulla ímyndunarafl 103 hugtaka.46 Þannig er til dæmis eðlilegt að taka svo til orða að sýna eigi fuglum umhyggju og samúð í vetrarhörkum, og einnig að gefa eigi veiðidýrum sanngjörn tækifæri.47 Við tölum um samband okkar við hunda, hesta og fleiri tegundir dýra sem vináttu eða félagsskap. Við tölum um velferð húsdýra og þá skyldu að láta dýr ekki þjást. Við tölum um virðingu fyrir dýrum og einnig um niðurlægjandi framkomu við þau. Sem dæmi um hvernig hugsanir okkar um hið síðastnefnda geta mótast af sýn á dýrin sem förunauta okkar má nefna atvik sem Diamond ræðir í grein sinni „Injustice and Animals“: Á myndbandsspólu sem stolið var frá Rannsóknarstofu höfuðáverka við Pennsylvaníu-háskóla var myndskeið sem kom sérlega illa við marga. Þar mátti sjá hluta starfsliðsins hafa einn bavíananna að háði og spotti. Að gera dýr að viðfangi kímnigáfu fólks á þennan hátt, gera það að atriði í brandara manns á þess kostnað er viss aðferð til að sýna vald sitt yfir því. Líkami dýrsins, sem er allt sem það á … er hafður að háði og spotti.48 Diamond bendir á það að í umræðum um réttindi dýra sé nær aldrei rætt um þessa tegund meðferðar á dýrum. Ástæðan er sú að samkvæmt hinni hefðbundnu röksemd fyrir réttindum dýra byggjast þau á hagsmunum þeirra. Hagsmunir dýrs eru svo sagðir byggjast á eiginleikum eins og þeim hvað dýrið gæti verið með- vitað um, eða hvað gæti talist fullnægja náttúrulegum þörfum þess. Ef dýrið er ekki meðvitað um það sem menn gera því eða þjáist ekki vegna þess, þá er erfitt, samkvæmt slíkum hugsunarhætti, að sýna fram á að menn geri því eitthvað illt með því að hafa það að athlægi. Þó virðist mörgum að slík framkoma sé skýrt dæmi um eitt af því hörmulega sem menn finna upp á að gera á hlut dýranna. Ein skýringin á því hvers vegna það reynist mörgum erfitt að svo mikið sem koma orðum að því ranglæti sem hér er á ferðinni, kann vel að vera sú að þeir hafna meðvitað eða ómeðvitað orðræðu um menn og dýr sem förunauta. Þeir hafna með öðrum orðum hinum ríkulega sjóði hugsana um líf okkar með og ábyrgð okkar á meðbræðrum okkar og -systrum, jafnt úr heimi manna sem málleysingja. Það er 46 Diamond 1996a: 329. Segja má að dómar um þýðingu hins mannlega, og enn frekar um þýðingu dýranna sem förunauta okkar, séu bæði hlutlægir og opnir. Gaita 2003: 180 bendir á það að dómar „í heimi þýðingarinnar“ taki á sig formið „Þetta er svona, er það ekki?“ og bjóði heim andsvarinu „Já, en …“. Við getum með öðrum orðum fellt ýmiss konar vel rökstudda dóma um þýðingu hlutanna, en slíkir dómar eru aldrei endanlegir – við getum ekki ákvarðað fyrirfram að engin önnur og betri leið sé til að sýna fram á þýðingu hlutanna. 47 Um slíka samúð með dýrum, sjá til dæmis dagbókarfærslu Henrys Davids Thoreau, Thoreau 1961: 126: „Eigum við ekki að hafa samúð með bísamrottunni sem nagar af sér þriðja fótinn [til að losna úr gildru], ekki vegna meðaumkunar með henni í þjáningum sínum, heldur í ljósi skyldleika okkar í dauðleika [our kindred mortality], sem færir okkur skilning á tilkomumiklum sársauka hennar og hetjulegri dygð? Gera örlögin okkur ekki að bræðrum hennar?“ Sjá einnig bók fjallgöngugarpsins Walters Bonatti, On the Heights, Bonatti 1979, en þar fléttast hugsanir fjallamannsins, sem horfist í augu við eigin lífsháska, saman við djúpa samúð með og umhyggju fyrir fiðrildi sem verður á vegi hans, og við hugsanir um sameiginlega berskjöldun þeirra og endanleg örlög. Þetta dæmi kemur við sögu í Gaita 2003: 117–139. 48 Diamond 2001: 137. Hugur 2018meðoverride.indd 103 24-Jul-18 12:21:26
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.