Úrval - 01.02.1947, Síða 8
6
tÍRVAL
vegna óheppilegra skilyrða, geri
uppreisn, ráðist á heilbrigðu
frumurnar og eyði þeim.
Vandinn er sá, að finna hvað
það er, sem verkar þannig á
frumui’nar, og eyðileggja þær,
áður en þær eyðileggja líkam-
ann.
A þriggja mínútna fresti deyr
einn maður í Bandaríkjmium úr
krabbameini. Áttunda hvert
dauðsfall er af völdum þess.
Ein af hverjum fjórum konum,
sem deyja á aldrinum 45—55
ára, deyr úr þessum sjúkdómi,
en enginn aldur er öruggur gegn
krabbameini, ekki einu sinni
barnsaldurinn. Seytján miljónir
núlifandi Bandaríkjamanna
munu deyja úr þessum hræði-
lega sjúkdómi, nema sigur vinn-
ist á baráttunni gegn honum.
Það kostaði tvo miljarða
dollara að framleiða fyrstu at-
omsprengjuna. Fremstu eðiis-
fræðingar og efnafræðingar, og
ennfremur fjöldi iðnlærðra
manna, unnu að þessu verkefni,
og auk þess yfir 100 þúsund
verkamenn. Verkinu var lokið
eftir tvö og hálft ár, og var
þetta ótrúlegt afrek.
Því ráðumst við ekki gegn
þessum ægilega vágesti, krabba-
meininu, með jafn miklu afli?
En hvað þetta viðfangsefni
snertir, þá eigum við í höggi
við frumur, þ. e. lífverur. Frum-
eindin aftur á móti er eining
efnisins.
Við erum ekki komnir nærri
því eins langt áleiðis að skilja
Iífið, eins og eðlisfræðingarnir
voru árið 1940 að þekkja efnið.
Þeir vissu heilmikið um frum-
eindina áður en þeir byrjuðu.
Við vitum mjög lítið mn frum-
una og starfsemi hennar, nema
að gerð hennar er óendanlega
miklu samsettari en frumeind-
arinnar. Fruman er samsett úr
miklum fjölda lífrænna efna,
sem eru gerð af miljónum frum-
einda. Við vitum ekkert um
það, hvaða lögmál stjórna þess-
ari lífveru, frumunni.
Hvað veldur því, að hún
skiptir sér í tvær frumur, sem
verða eins og hún sjálf?
Hvemig geta líkamsfrumurnar
vitað nákvæmlega, hvenær þær
eiga að vaxa og margfaldast?
Hvað stjómar breytingum
frumanna i hinar ýmsu tegund-
ir líffæra, þegar fóstrið er að
myndast og vaxa? Og á hvern
hátt hafa krabbameinsfrumurn-
ar Iosnað undan heildarstjóm-
inni? Þetta era nokkur atriði,