Úrval - 01.02.1947, Qupperneq 73
ÆíVTNTÝRIÐ UM TINKÓNGINN
73.
En efst á tindinum reisti Símon
Patinó litla kapellu. Síðan hefir,
að skipun tinkóngsins, prestur
úr dalnum arkað þangað einu
sinni ár hvert og sungið þar
messu.
Einu sinni vildi það til, að
námafélag eitt frá Chile byrj-
aði að grafa hinumegin í fell-
inu. Óhófsleg samkeppni hófst
milli Patinós og Chilemanna.
Þeir höfðuðu mál hvor á hendur
öðrum, og á knæpum og krám,
sem verkamenn beggja aðila
sóttu, var barizt og blóði úthellt.
Patinó varð brátt þrautleiður
á þessari eilífu orrahríð. Svo að
lítið bar á og án þess að nefna
það við neinn nema konu sína,
hvarf hann allt í einu frá Oruro.
Hann fór til Chile. Heima í Bóli-
víu hélt bardaganum áfram.
Skyndilega skaut honum aft-
ur upp — ekki þó sín megin
fellsins, heldur þeim megin, sem
Chilemennirnir voru að greftri.
„En sú óskammfeilni “hreytti
einn þeirra út úr sér. „Hvað
eigið þér með að vera að snuðra
hér í þessari námu?“
„Því ekki það?“ svaraði Pat-
inó með hægð. „Ég á hana!“
Patinó varð æ ríkari, eftir því
sem árin liðu. Fyrirtæki hans
margfaldaðist, ágóðinn jókst
jafnt og þétt. Peningarnir
streymdu til hans í gullnum
flaumi.
Hann kynntist París. Iíann
átti viðskipti við mestu tinjöfr-
ana í Lundúnum. Hann ferðað-
ist til New York og gerði stór-
kostlega samninga við valds-
mennina í Wall Street og hélt
þeim veizlur í veglegustu salar-
kynnum Waldorf-Astoria.
Son sinn gifti hann prinsessu.
af Bourbon-konungsættinni, ná-
frænku Alfonso Xni. Spánar-
konungs. Dóttur sína eina gifti
harm bólivískum fésýslumanni,
aðra frönskum aðalsmanni og
þá þriðjuspönskumstórgæðingi,
svo tiginbornum, að hann þurfti
ekki að taka ofan er hann tal-
aði við Alfonso.
En alltaf var hann samt al-
ráður stjórnandi tinnámaríkis.
síns. „Við viljum hætta að
vinna hérna,“ sögðu sérfræð-
ingar hans í Bólivíu og nefndu
sérstaka námu, sem varia hafði
gefið nokkurt tin um lengri
tíma. — „Haldið áfram að
grafa,“ skipaði Don Símon.
Sérfræðingamir ypptu öxlum
og kváðu frekari vinnslu ekki
svara kostnaði, en hann lét sig
ekki. — „Aumingja karlinnt
Honum er farið að förlast/1'