Úrval - 01.12.1954, Blaðsíða 34
32
ÚRVAL
að hjartað bilar vegna ofmikils
álags, eða æð springur í heilan-
um. Tilraunir til að lækna ill-
kynjaða blóðþrýstingshækkun
höfðu hingað til borið lítinn ár-
angur: læknar sögðu sjúkling-
um sínum að fara sér hægt eða
leggjast í rúmið, en árangurinn
var oftast næsta lítill. Ur því
að nýmahetturnar áttu stærst-
an þátt í blóðþrýstingshækkun-
inni, væri þá ekki reynandi að
taka þær burtu? spurðu skurð-
læknar. Á eftir mætti svo halda
lífi í sjúklingunum með því að
gefa þeim að staðaldri cortison,
sem er mikilvægasti vaki nýrna-
hettanna.
Skurðaðgerð þessi hefur ver-
ið reynd á nokkrum sjúklingum,
sem flestir voru taldir eiga að-
eins fáa mánuði ólifaða. Þrír
af hverjum fjórum lifðu hina
róttæku aðgerð af, og í þeim
öllum að heita má féll blóð-
þrýstingurinn niður í eðlilega
hæð.
Það er nokkur vísbending um
þá athygli, sem áreynslutilraun-
ir Selyes hafa vakið, að um 5000
rannsóknarskýrslur varðandi
samskonar tilraunir eru nú birt-
ar árlega. Enn frekari sönnun
er sá styrkur, sem Selye og sam-
starfsmenn hans, en þeir eru nú
47, hafa fengið frá stofnunum,
einstaklingum, lyf javerksmiðj-
um og ríkisstjórnum Kanada og
Bandaríkjanna.
Hvaða lærdóm má nú draga
af uppgötvunum Selyes ? Hvern-
ig er hægt að forðast þá á-
reynslu, sem alltof oft endar
með skelfingu? Það er hægur
vandi að ráðleggja önnum köfn-
um manni að fara sér hægt, og
áhyggjufullum manni að varpa
af sér áhyggjunum — en öllu
örðugra að fylgja þeim ráðum.
En það er hægt að gera öllum
mönnum ljósa þá staðreynd, að
langvarandi áreynsla er tíð dán-
arorsök, ef til vill tíðust allra
dánarorsaka. Þegar menn hafa
gert sér það ljóst, er von til
þess að menn dragi réttan lær-
dóm af þeirri vitneskju. Flest-
ir eru færir um að breyta lífs-
venjum sínum, ef þeim hefur
verið gert nógu ljóst, að líf
þeirra sé í veði.
Ef skoðanir Selyes reynast
réttar, er hægt að sjá fyrir þann
dag þegar fólk getur með jöfnu
millibili látið rannsaka hið kem-
íska jafnvægi í líkama sínum,
á sama hátt og menn láta nú
rannsaka efnaskipti, blóðþrýst-
ing og þvag. Ef í ljós kemur
að jafnvægið hefur raskazt,
verður ef til vill hægt að koma
því á aftur með því að gefa vaka
eða önnur efni. Þegar sá dagur
rennur upp. sér Selye enga á-
stæou til að efast um að hægt
verði að lengja mannsævina í
100 ár eða meira.