Úrval - 01.12.1954, Blaðsíða 89

Úrval - 01.12.1954, Blaðsíða 89
HEILBRIGÐISMÁL 1 SOVÉTRÍKJUNUM 67' getur sótt til stéttarfélags síns um styrk allt upp í 70% af dvalarkostnaði þennan tíma. En til þess að fá hann, verður hann að koma með læknisvottorð um, að hann hafi heilsu til að hjóla yfir Úralfjöllin (ef það er ætl- un hans), eða að hann hafi heilsu sinnar vegna þörf fyrir mánaðar dvöl á einhverju af heilsuhælum þeim, sem stéttar- félagið hefur til umráða handa verðugum verkamönnum sínum. Sum þessara heilsuhæla eru eins vel búin og ríkulega og dýr vestræn sumarhótel (mig dreymir enn matseðilinn á heilsuhæli námuverkamanna, sem ég heimsótti við Svarta- haf) og vel getur verið (án þess ég viti), að dvalarleyfi á þeim beztu séu oftar veitt sem umbun fyrir flokksþjónustu en af heilbrigðisástæðum. En því verður ekki neitað, að rekstur heilsuhæla og hvíldarheimila er mjög stór þáttur í rúnneskri læknaþjónustu. Á um það bil 2000 slíkum hælum nutu um 4.000.000 manna læknishjálpar síðastliðið ár. Önnur heilsuverndarráðstöf- un er reglubundin læknisskoðun. „Ef við getum ekki komið í veg fyrir alla sjúkdóma," segja Rússar, „getum við að minnsta kosti leitað þá uppi meðan enn er hægt að lækna þá.“ Þessvegna er fólk læknisskoð- að hvar og hvenær sem hægt er. Flestir njóta læknisþjónustu í heimangönguspítala (Polikli- nik) eða heilsuverndarstöð í næsta nágrenni sínu; og í Mosk- vu, að minnsta kosti, er til þess ætlazt, að hver maður komi til læknisskoðunar minnst einu sinni á ári. Menn ganga frá einum sérfræðing til annars, og tekur skoðunin um þrjá stund- arf jórðunga. Vitjanir þessar eru ekki beinlínis skylda, en það verður æ erfiðara að komast hjá læknisskoðun. Ef menn vilja taka þátt í skipulögðu sumar- leyfi eða fá sumarleyfisstju’k, þarf læknisvottorð til. Oft eru gerðar fjöldaskoðanir tii að finna sérstaka sjúkdóma, s. s. berkla, krabbamein eða of háan blóðþrýsting. Koma þá hópar sérfræðinga í verksmiðju, hverfi eða hérað og skoða alla. Síðan 1946 hafa um 61 milljón manna verið krabbameinsskoðaðir, og hefur fundizt krabbamein að meðaltali í einum af hverjum þúsund. Þessar kerfisbundnu heildar- skoðanir skýra það að nokkru leyti, hversvegna fleiri læknar eru í Sovétríkjunum, miðað við íbúa, en í Englandi, þó að þjón- usta við sjúklinga sé þar ekki eins fullkomin. Önnur skýring er sú, að vinnudagur lækna er aðeins sex og hálf stund á dag. Sumir vinna að vísu lengur eða hafa tvær stöður, en meira en helmingur læknanna eru konur, og þær sem eiga heimili og börn munu telja sex og hálfa stund nógu langan vinnudag. Ókunn- ugum kann í fyrstu að finnast
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.