Úrval - 01.12.1954, Page 101

Úrval - 01.12.1954, Page 101
STRÁKAPÖR 99 eru það hinsvegar ekki og mættu kallast heimspekilegar tilraunir, svo sem eins og þegar hann fór til Alaska og seldi Eskimóa þar ísskáp, helti viskí í rottu til þess að sjá frum- myndina að því að vera „rottu- fu.llur" — og einu sinni málaði hann kú purpurauða og leiddi inn í forsal gistihúss nokkurs til að sýna skáldinu Burgess sem orkti ljóð, sem nefndist ,,Ég hef aldrei séð purpura- rauða kú.“ Fyrir tíu árum þurfti Jim, starfs síns vegna að aka í bif- reið um þver og endilöng Banda- ríkin. Hann ferðaðist einsam- all og tók honum að leiðast aksturinn. Dag nokkurn keypti hann sér því grímu með fá- bjánasmetti. Hann lagfærði síð- an grímuna svo að hún félli að hnakka hans og aftraði ekki sjón hans. Þegar hann ók eftir þjóðvegunum beið hann þar til hann sá annan ökumann vera að búa sig undir að aka fram- úr honum. Þá hallaði Jim sér út um gluggann og snéri fá- bjánaandlitinu aftur. Þetta hlýt- ur að hafa haft nístandi áhrif á bifreiðastjórann, sem á eftir kom, að sjá þennan glottandi fábjána undir stýri á bifreið á fullri ferð með andlitið aftur á baki og án nokkurs tillits til vegarins framundan. .# Um skeið var Jim ráðinn til að slæpast á fullu kaupi í skrif- stofum Fred Warings. Að nafn- inu til var hann blaðafulltrúi Warings. Morgun einn sat hann við skrifborð sitt og strauk raf- magnsrakvél um kjammana þegar hann minntist þess skyndilega að hann átti að hringja til útvarps-ritstjóra dagblaðsins MP. Hann tók upp símann, hringdi, og á þeim skamma tima sem hann þurfti að bíða þess að fá samband við manninn hugsaði hann upp ráð til að skemmta sér. Hann hélt taltrektinni í fets fjarlægð frá andlitinu og hrópaði: „Jerry ?“ „Já.“ „Þetta er Jim Morgan. Gettu hvar ég er!“ „Þú gætir verið á Norður- pólnum eftir því að dæma hvern- ig heyrist til þín,“ sagði Jerry. Rafmagnsrakvélin var ennþá í gangi og Jim tók nú að hreyfa hana til og frá, —- að taltrekt- inni og frá henni. „Heyrðu mig, Jerry!“ æpti hann. „Ég er í sprengjuflug- vél Bandaríkjahers í fjörutíu- þúsund feta hæð yfir La Guar- dia flugvellinum. Heyrirðu til mín ?“ „Haltu áfram,“ sagði Jerry. Og áfram var haldið með rak- vélina. „Hlustaðu nú á,“ sagði Jim, „við erum hérna upp til þess að sjá tilraun flughersins með nýjan og stórkostlegan flugvéla- síma. Þetta er annað símtalið um þennan síma. Fyrra símtalið var við forsetann í Washington. L
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.