Úrval - 01.05.1968, Side 8
6
lent á, er í Marion í Illinoisíylki,
um 180 mílum fyrir norðan okkur.“
„En ég get ekki flogið í norð-
ur,“ sagði flugmaðurinn á „48
Charlie“ bænarrómi. „Það er vegna
mikilla skýjabakka. Viljið þið
senda einhvern á loft til þess að
leiðbeina mér til jarðar?*
„Hve mikið bensín áttu eftir?"
Það höfðu verið 170 lítrar á
bensíngeymi flugvélarinnar, þegar
hann lagði af stað, en slíkt nægði
til 4 til 41/2 klst. flugs. Nú hafði
flugvélin verið á lofti í talsvert
meira en 2 klukkustundir.
„Til tveggja klukkustunda flugs
í mesta lagi,“ svaraði flugmaður-
inn.
„Bud greip fram í samtalið.
„Flugturninn á Memphisflugvelli.
Þetta er Grumman Mallard N2965.
Við erum á þessu svæði. Ef þið
viljið gefa mér ótakmarkað svig-
rúm til þess að hækka flugið í sam-
ráði við ratsjárleiðbeiningar, skul-
um við reyna að finna „48 Charlie"
og sjá, hvað við getum gert.“
„Allt í lagi.‘ Merki Grumman
Mallard N2965 komu fram í rat-
sjá flugturnsins. Starfsmennirnir í
flugturninum flýttu sér að beina
öðrum flugvélum á svæðinu á aðr-
ar brautir og „hreinsuðu þannig til
á 50 fermílna svæði í kringum
flugvélarnar tvær og gáfu þeim
ótakmarkaða fj arskiptabylgj utíðni.
Svo byrjuðu starfsmennirnir að
færa þessa tvo depla á ratsjár-
skerminum nær hvor öðrum. Þeir
gáfu „48 Charlie" stefnu í suður-
átt og gáfu Bud stöðugar ratsjár-
leiðbeiningar, þannig að hann gat
stöðugt breytt stefnu sinni x sam-
ÚRVAL
ræmi við hina breyttu stöðu „48
Charlie“ hverju sinni.
Á meðan var Bud í talsambandi
við flugmanninn á „48 Charlie".
„Þú verður að komast sem fyrst
niður úr þessari miklu hæð. Eru
neglurnar á þér farnar að blána?“
(Það er fyrsta merkið um súrefn-
isskort).
„Já, svolítið."
„Lækkaðu flugið, þangað til
hjólin snerta skýin. Láttu mig svo
vita, hver hæðin er eftir það.“
„Ég er í 13.000 feta hæð
12.000 feta .. .. 11.000 feta ....
10.000 feta 9.000. Nú er ég
kominn alveg niður að skýjunum.
„Það er gott. Fljúgðu í þeirri
hæð.“
Starfsmennirnir í flugturninum
sendu nú Bud svohljóðandi til-
kynningu: „Stefna þín er nú 171
gráða, og nú eru 2 mílur á milli
ykkar ... hálf önnur . . ein ...
hálf . . Þú fórst framhjá hon-
um. Þú misstir af honum.“
„Haldið áfram að leiðbeina mér,
og ég skal reyna aftur,“ svaraði
Bud.
Bud fór í krappan hring til
vinstri, samkvæmt upplýsingum frá
flugturninum. Starfsmennirnir
héldu áfram að skýra frá fjarlægð-
inni milli flugvélanna. Bud starði
í gegnum nokkur sundurlaus ský
og sagði svo skyndilega: „Ég er
búinn að jinna hann.“ Hann flaug
flugvélinni á hlið við „48 Charlie".
Það var eins og bústin hæna væri
að reyna að vernda mjög tauga-
óstyrkan kjúkling.
Flugmaðurinn á „48 Charlie"
hrópaði: „Mikið er ég feginn að