Úrval - 01.05.1968, Blaðsíða 37
Hver var hinn raunverulegi
Patrekur? Frœðimenn nútímans
hafa endurskoðað hinar sögu-
legu hevmildir, er snerta œvi
lians, og nú gefst okkur loics
tœkifœri til þess að sjá vernd-
ardýrling Irlands eins og
liann var í raun og veru.
Eftir ERNEST O. HAUSER
spekingur, töframaður og galdra-
maður, er alla töfrar, heldur en sá,
sem breiddi út fagnaðarerindið, en
það var hans raunverulega mikla
hlutverk.
írar, sem eru fæddir sagnaþulir,
hafa skreytt þessa gloppóttu ævi-
sögu dýrlings síns með mörgum
fornum, heiðnum sögnum til þess
að bæta úr hinni takmörkuðu vitn-
eskju, sem varðveitzt hefur um
raunverulegt líf hans. Fólk vissi
það alltaf, að það voru ekki til
neinir snákar í írlandi, en um árið
1100 bættist samt við hina löngu
runu afreksverka hans, er byrjað
var að halda því fram, að Patrek-
ur „hafi rekið burt snákana í ír-
landi.“ Sú skemmtilega hugmynd,
að hann hafi notað hvítsmárann
(þjóðarmerki íra, þýð.) orðum sín-
um til áherzlu, er hann kenndi fólki
um heilaga þrenningu, er jafnvel
enn nýrri af nálinni.
Patrekur var reyndar alls eng-
inn íri og kom fyrst til írlands
þvert gegn vilja sínum, en samt
er hann tengdur þessu nýja ætt-
landi sínu . sterkari böndum en
nokkur annar af sonum þess. Bæði
kaþólskir menn og mótmælendur
dá hann. („Hin almenna bænabók"
írskra mótmælenda hefur að geyma
bæn til Guðs, sem í gæzku sinni
valdi „þjón sinn Patrek til þess að
gerast postula írsku þjóðarinnar.“)
Patrekur hefur verið mjög vinsælt
nafn í svo langan tíma, að orðið
„Paddy“ er farið að þýða hið sama
og „íri“. Og það var hinn lifandi
andi Patreks, sem barst með írsk-
um innflytjendum til Nýja heims-
ins. Nú ber hin risavaxna skrúð-
ganga í New York á Sankti Pat-
reksdaginn vitni um áframhaldandi
áhrif íra í Ameríku.
35