Úrval - 01.05.1968, Síða 90
88
ÚRVAL
ar. En skýjakljúfaþyrping þessi hef-
ur til að bera annað, sem var þá
algerlega nýtt, gott rými á milli
bygginganna, næga birtu og heild-
arsvip, sem er glæsilegur og gleður
augað og gefur svæðinu sitt sérstaka
svipmót. Douglas Haskell, fyrrver-
andi ritstjóri arkitektatímaritsins
„The Architectural Forum“, tókst
að lýsa þessu vel, þegar hann skrif-
aði, að Rockefeller Center hefði
veitt New Yorkborg og íbúum
hennar „meira rúm, meiri list og
meiri gleði en nokkur önnur fram-
kvæmd af sambærilegri stærð á
sviði borgarendurskipulagningar.
Ameríkumönnum þykir vænt um
svæði þetta, en þó er ekki hægt að
segja slíkt um aðrar slíkar meiri
háttar tilraunir á þessu sviði.“
Það var ekki auðvelt fyrir Rocke-
feller að ná hinu takmarki sínu,
þ.e. að fá nægilegt í aðra hönd
miðað við það fjármagn, sem lagt
hafði verið fram, en þar var um
125 milljónir dollara að ræða. í
fyrsta skipti í byggingarsögu
skýjakljúfanna höfðu 15% bygg-
ingarlóðanna verið tekin frá sem
auð svæði. Og þessi staðreynd
hafði sannfært marga þá, sem
stunduðu fasteignaviðskipti eða
reistu stórbyggingar, um að þetta
fyrirtæki gæti alls ekki borið sig.
En eftirspurnin eftir skrifstofuhús-
næði jókst gífurlega með tilkomu
síðari heimsstyrjaldarinnar, og
Rockefeller Center tók að bera sig
fjárhagslega snemma á fimmta
áratug aldarinnar.
Nú er allt húsnæði skýjakljúf-
anna leigt út og jafnvel meira en
það eða 110%. Þar er um að ræða
leigjendur á biðlista, sem bíða eftir
því, að einhver smuga losni. „Að-
alvandamál okkar er að finna við-
bótarrými fyrir þá leigjendur okk-
ar, sem vilja auka við sig húsnæði,"
segir G. S. Eyssell, forstjóri Rocke-
feller Center, Inc. Þrjár nýjar
skrifstofubyggingar hafa bætzt í
hópinn síðan 1947, og Rockefeller
enter hefur gerzt aðili að rekstri
tveggja annarra bygginga og gisti-
húsi þar að auki. Er áætlað .verð-
mæti allra fasteigna Rockefeller
Center hefur gerzt aðili að rekstri
ir dollara.
„ROCKETTES-D ANSME Y J AR
OG JÓLATRÉ"
Og svo hóf skemtanaiðnaðurinn
loks innreið sína í Rockefeller
Center, er efnahagurinn tók að
blómstra. Hið risavaxna Radio
City Music Hall hefur orðið einn
frægasti skemmtistaður Bandaríkj-
anna. Hingað til hafa meira en 200
milljónir manna keypt aðgöngu-
miða að þessum risasal til þess að
sjá hinar frægu dansmeyjar, „The
Rockettes“, dansa í undraverðu
samræmi sem ein dansmær væri,
sjá þar ballettsýningar og heila
runu af frægum gestastjörnum og
nýjustu stórkvikmyndirnar. Þess-
ir gestir hafa verið alls staðar að
úr heiminum. Þeir koma stundum
rétt eftir dögun og standa þar í
ferfaldri röð, sem nær út að næsta
götuhorni, í þeirri von, að þeir, nái
í sæti. Einn dag álitu lögregluþjón-
arnir, að það biði þarna 10.000
manns til þess að reyna að ná í þau
6.200 sæti, sem eru í þessum risa-
sal.