Úrval - 01.05.1968, Page 91
ROCKEFELLER CENTER
89
Rockefeller Center er nú orðið
35 ára gamalt, og er það hár aldur
fyrir skýjakljúfa. Ein af ástæðun-
um fyrir því að það gengur svona
vel að fá leigjendur og framtíð
þessa fyrirtækis er svo björt, er
sú, að Rockefeller krafðist þess,
að byggingarnar skyldu vera
þannig úr garði gerðar, að þær
„þjónuðu á sem allra beztan hátt“
þörfum þess fólks, sem skyldi nota
þær. í stað þess að reisa skýja-
kljúf og skipta svo hverri hæð í
vissan fjölda af skrifstofum,
byrjuðu arkitektarnir að hugsa sér
mann við skrifborð. Þeir tóku það
með í reikninginn, hversu mikla
gluggabirtu hann þarfnaðist, hversu
langt birtan mundi falla inn í
bygginguna, hversu mikið rúm
hann þyrfti fyrir skrifstofu ritara
síns og fyrir ganginn fyrir framan
skrifstofurnar.
Á grundvelli slíkra útreikninga
ákváðu þeir, að engin skrifstofa
skyldi ná lengra en 27 fet frá
gluggum. Á ytri veggjum er til
skiptis 5 feta veggpláss, og svo
kemur gluggi og svo koll af kolli.
Því getur leigjandinn fest milli-
vegg hvar sem er á þessu 5 feta
breiða bili á milli glugganna á út-
veggnum. Það er mikill munur á
slíku eða hinu ósveigjanlega ein-
ingakerfi í flestum nýju skýjakljúf-
unum, sem hafa framhlið úr gleri.
Þar verður að vera nokkurn veg-
in viss stærð á öllum skrifstofun-
um, vegna þess að það eru svo tak-
markaðir möguleikar á að festa
milliveggina á útvegginn.
Rockefeller Center var einnig
skipulagt þannig, að það drægi úr
umferðarhnútum og öngþveiti og
hvetti fólk til þess að ganga. Bíla-
geymslur eru í 6 hæða byggingu,
sem er að nokkru leyti neðanjarð-
ar og tekur 700 bíla. Brú, sem
liggur að affermingarpöllum neð-
anjarðar, afgreiðir yfir 800 bíla
á dag, sem afgreiða alls konar vör-
ur til bygginganna. Fer sú af-
greiðsla fram neðanjarðar. Neð-
anjarðar eru líka gangbrautir, sem
tengja saman allar byggingar
Rockefeller Center. Brautir þessar
eru hálf önnur míla á lengd sam-
anlagðar, og meðfram þeim er fjöldi
verzlana. Þetta gerir þúsundum fót-
gangandi manna fært að ganga til
og frá allra bygginganna og til
neðanjarðarstöðva án þess að fara
nokkru sinni yfir götu.
Rockefeller Center nær yfir
þrjár götulengdir og myndar nokk-
urs konar opið svæði, eins konar
bæjartorg eða þorpsflöt. A.m.k.
geta New Yorkbúar víst tæplega
vænzt þess að eignast annan stað,
sem væri frekar í líkingu við bæj-
artorg. Margir New Yorkbúar álíta
jafnvel, að þetta torg sé í eigu
borgarinnar. En það er rangt. Þar
er um einkaeign að ræða, hluta af
Rockefeller Center. Það er von, að
þeir freistist til þess að álíta þetta,
því að það er opið svæði hringinn
í kringum sjálft torgið. Þar borð-
ar fólk við borð úti á sumrin eins
og á útiveitingastöðum í Evrópu,
og þar er skautasvæði að vetrin-
um. Þar eru einnig alls konar há-
tíðahöld á opinberum frídögum og
hátíðisdögum eða vegna móttöku
frægra, erlendra gesta. Þar eru
hljómleikar, blómasýningar og svo