Úrval - 01.11.1968, Síða 28
Sumir hafa nautn af því að sjá menn hjarga sér úr bráðum háska.
Aðrir telja það siðleysi að skemmta sér við að horfa á dýr,
sem menn hafa þvingað til að hegða sér öðru vísi en þevm er
áskapað. En þeir eru fáir, sem botna nokkuð í því, hvaða
aðferðum menn beita til þess að fá dýrin til að leika þessar listir.
Dýrasýningar
í sirkus
Eftir V. G. BRÖNDEGAARD
9Flestir hafa gaman af
að fara í sirkus og horfa
á dýr leika þar listir
sínar, fíla standa á
höfði, ljón sitja hest og
tígrisdýr stökkva gegnum logandi
hringi, en þó er til fólk, sem hefur
ógeð á slíkum sýningum. Sumir
hafa nautn af því að sjá menn
bjarga sér úr bráðum háska. Aðrir
telja það siðleysi að skemmta sér
við að horfa á dýr, sem menn hafa
þvingað til að hegða sér öðruvísi
en þeim er áskapað. En þeir eru
fáir, sem botna nokkuð í því, hvaða
aðferðum menn beita til þess að fá
dýrin til að leika þessar listir.
Það hefur mikið verið rsett og
ritað gegn slíkum dýrasýningum,
sem hafa ekki annan tilgang en að
fullnægja forvitni manna og
skemmtanafíkn, en þar sem erfitt
mun reynast að breyta mannlegu
eðli hvað þetta snertir, þá verður
það að minnsta kosti að teljast
framför, að tamning dýranna fer nú
fram með öðrum hætti en áður tíðk-
aðist. Hin svonefnda ,,harða tamn-
ing“, þar sem dýrin eru lamin til
hlýðni, hefur látið undan síga fyrir
mildari aðferðum, sem byggjast á
samstarfi beggja aðila.
Rándýrasýning rússneska dýra-
temjarans Zapasnijs er gott dæmi
um þetta. Undir hægum trumbu-
slætti leggjast fjögur tigrisdýr og
eitt fullvaxið ljón niður í miðju
búrinu. Zapasnij sækir þau eitt af
öðru og þessi stóru rándýr labba
til hans hlýðin og auðmjúk. Tigris-
dýrin teygja frá sér fæturna og
leggja kollhúfur, en ljónið hneigir
26
Vor Viden