Úrval - 01.11.1968, Page 67
ORKULINDIR FRAMTÍÐARINNAR
65
enn þyngra vatnsefni tritium. Þetta
er líka kjarnorka, en mynduð með
öðrum atómkjörnum en þeim, sem
klofnir eru. Við samrunaaðferðina
þarf hita, margar milljónir stiga,
svipað og er í miðju stjarnanna eða
í vetnissprengju, sem springur. En
hvort unnt verður að nýta þessa
feikna orku til annars en að fram-
leiða gereyðingarvopn er annað
mál. Það mun áreiðanlega taka
mörg ár að svara þeirri spurningu,
og þó að svarið verði jákvætt, mun
enn líða langur tími þar til hægt
verður að nota orkuna á hagkvæm-
an hátt.
Um þá kjarnorku, sem framleidd
er með klofningu atómkjarnans, er
hins vegar margt vitað og hún er
m. a. nýtt til framleiðslu rafmagns
og hefur á því sviði reynzt, undir
vissum kringumstæðum, samkeppn-
isfær við aðra orkugjafa, svo sem
kol, olíu og jarðgas. Um þetta vitna
hin mörgu kjarnorkuver, sem kom-
in eru í fullan rekstur eða verið er
að byggja víða um heim. En hér er
um tækniþróun að ræða, sem er
svo ný af nálinni, að ekki eru nema
nokkrir áratugir síðan að fyrstu til-
raunirnar voru gerðar til að nýta
þessa orku. Það er enn löng þróun
framundan til þess að bæta tækn-
ina á þessu sviði.
Sá hluti kjarnorkuvers, þar sem
klofning atómkjarnans fer fram,
hefur verið nefndur kjarnakljúfur,
og í þeim kjarnakljúfum, sem nú
eru yfirleitt í notkun, nýtist um það
bil einn hundraðshluti þeirrar
orku, sem úraníumið býr yfir, þ. e.
það sem hægt er að framleiða úr
uran-235.
En uran-235 er aðeins 0,7 af
hundraði af óunnu úraníum, af-
ganginn, uran-239, er ekki hægt að
kljúfa á sama hátt, heldur verður
fyrst að breyta því í hið kljúfan-
lega efni plutonium-239 í þar til
gerðum kjarnakljúf, sem framleið-
ir orku jafnframt því sem hann
ummyndar efnið. Tæknilegar um-
bætur á þessum sérstöku kjarna-
kljúfum, svo að þeir geti orðið sam-
keppnisfærir við aðrar orkulindir,
er eitt þýðingarmesta viðfangsefn-
ið með tilliti til orkuframleiðslunn-
ar í framtíðinni, enda vinna stór-
þjóðirnar af kappi við lausn þessa
vandamáls og spara hvorki fé né
mannafla. Smáþjóðirnar geta lítið
lagt af mörkum á þessu sviði, en
það eru svo mörg viðfangsefni í
sambandi við nýtingu kjarnork-
unnar, að jafnvel smáþjóðirnar eiga
að nota alla möguleika sína til þess
að taka þátt í rannsóknum þeim,
sem nauðsynlegar eru, ef menn
vilja nýta kjarnorkuna til fulls.
☆
Það er alveg sama, hver kvillinn er. Hinn hái sjúkrakostnaður nú á
dögum sér fyrir ,því, að verkurinn heldur sig einhvers staðar nálægt
öðrum innanávasanum á jakkanum.
Jack Wilson.