Úrval - 01.11.1968, Síða 70
68
ÚRVAL
Loftmynd af liinu 23 ekra klettavígi. Stóra rómverska virkisbrekkan er enn__
óbrotin.
þræla, og frá dögun fram í myrkur
strituðu þeir í eyðimerkurhitanum.
Þeir, sem vörðust á tindum Masada
létu steinum og örvum rigna niður
á þá, sem réðust til uppgöngu og
seinkuðu för þeirra um tíma. En
þetta var til einskis og í skjóli boga-
skytta sinna, ýttu Rómverjar virk-
isbrekkunum upp á tindinn.
Nú lét Silva setja upp árásarturn,
sem var útbúinn með vígslöngum
ásamt múrbrjóti til að brjóta niður
varnir Masada. Skarð var gert í
múrinn og blysberar réðust í gegn
til að kveikja í virkinu. Rómverj-
arnir hurfu nú aftur til búða sinna,
til að undirbúa aðalárás, sem gerð
skyldi daginn eftir, vissir um, að
sigurinn var á næsta leiti.
Síðustu stundum Masada er vel
lýst af ísraelska sagnfræðingnum
Flaviusi Josephusi, sem hafði sleg-
izt í hóp óvinanna fyrir fall Jerú-
salem árið 70 og orðið auðugur,
rómverskur borgari. Frásögn hans
er eina samtíma frásögnin af því
sem gerðist hina örlagaríku nótt,
vorið 73.
Er logarnir teygðu sig meðfram
virkisgörðum Masada, kallaði Ele-
azar ben Ya'ir á foringa hins sigr-
aða flokks síns til fundar. „Dögun-
in bindur endi á viðnám okkar,“
sagði hann við þá. „En okkur er
frjálst að velja sómasamlegan dauð-
daga ásamt ástvinum okkar. Við
skulum ekki yfirgefa þessa jörð
sem þrælar óvina okkar, heldur
sem frjálsir menn ásamt konum
okkar og börnum.“
„En áður en við deyjum,“ skipaði
Eleazar, „skulum við kveikja í öllu
virkinu: það verða sár vonbrigði
fyrir Rómverjana að komast að