Úrval - 01.11.1968, Page 89

Úrval - 01.11.1968, Page 89
RISADÝR FRÁ MIÐÖLD JARÐAR 87 hvössum beingöddum; annars var húðin með dreifðum beinplötum, göddum og broddum. Kampeðlan hefur verið grasæta, það sýna tenn- urnar; þær eru 92 að tölu og smáar og virðast hafa verið til mikils gagns í viðskiptum við óvinadýr. Árið 1887 fundust í Colorado tvö steingerð horn, og héldu menn í fyrstu, að þau væru af spendýri, t.d. af útdauðri vísundar-tegund. Tveim árum síðar fannst heil haus- kúpa með áföstum, samkynja horn- um. Kom þá í ljós að hér var um skriðdýr að ræða. Fram að þeim tíma höfðu engin hyrnd skriðdýr fundizt. Síðan hafa fundizt margar beinagrindur þessa dýrs, sem nefnt hefur verið nashyrningseðla, eða á vísindamáli Triceratops. Þessi eðla hefur haft 3 horn, tvö ofan við augun og hið þriðja á nefinu. En til hafa verið ýmis afbrigði af nas- hyrningseðlunni. Sennilega hefur verið hér um sérstaka ættkvísl að ræða, og til hennar talizt nokkrar sjálfstæðar tegundir. Árið 1914 fundust í Alberta-riki í Kanada beinagrindur af slíkum eðlum, og höfðu þær haft aðeins eitt horn á hausnum, nánar tiltekið á nefinu. Tennur dýrsins sýndu, að það hef- ur verið jurtaæta, og ennfremur, að það hefur ekki malað fæðuna á milli tannanna, heldur gleypt hana sund- urhlutaða. Þessi tegund hefur verið uppi síðast á Krítartímanum. Allar nashyrningseðlur voru þannig skap- aðar, að út úr höfðinu að aftan var vaxinn heljarmikill beinkragi, er lagðist eins og felling niður um hnakka og háls dýrsins. Vegna þessa sköpulags sýndist höfuðið vera lengra en það var í raun og veru. Ein tegund eðlanna hefur haft 6 horn á hausnum og hafá þau vaxið í hálfhring upp í gegnum afturrönd beinkragans. Dýr þessi hafa því ver- ið heldur ófrýnileg ásýndum. Lik- amslengd þeirra var 8—9 metrar, og ætlað er að hauskúpan ein út af fyrir sig hafi vegið tvær smá- lestir. Og enn kom ein tegund af nas- hyrningseðlum fram í dagsljósið austur í Mongólíu. Var hún frá Krítartímanum. Þetta gerðist á ár- unum 1922—1930, en þá lét Náttúru- gripasafn New York-borgar gera út mikinn leiðangur í austurveg. Þessi rannsóknarför gaf ágæta eftirtekju. Þá fyrst tókst mönnum að finna trölleðluegg, ekki bara eitt egg, heldur fundust heil hreiður, og voru beinagrindur af fóstri í sumum eggjunum og sömuleiðis af uhgum, nýskriðnum úr egginu. í námunda voru svo beinagrindur fullorðinna dýra. Umrædd tegund er talin til nashyrningseðlanna, en er þó horna- laus. Ætlað er, að hún sé formóðir hornóttu tegundanna. Vísindaheitið Protoceratops, sem hún hefur hlot- ið og þýðir frumhyrningur, á þó ekki vel við. En hvað er það meira en að telja nauðkollóttar sauðkind- ur til slíðurhyrninga? Egg frum- hyrningsins reyndust vera 15 cm löng. Hafði þeim verið orpið í með- algrófan sand, og raðað í hvirfingu. Síðan hefur sólarhitinn verið látinn sjá um útungunina. Samtímis frum- hyrningnum hefur lifað á þessum slóðum tvífætt eðla :eggjarœninginn. Fundu leiðangursmenn beinagrind af eðlunni yfir hreiðri frumhyrn-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.