Úrval - 01.11.1968, Síða 111
LIFANDI DAUÐI TIL SÖLU
109
var af glæpaflokki, og hann hefur
líka setið inni.“
Þegar símatali þessu var lokið,
hafði Mike Telano sannarlega feng-
ið öll þau meðmæli, sem hann þurfti
á að halda til þess að eiga viðskipti
við Sieardo.
„ÞÚ ERT NÚ LAUS ÚR ÖLLUM
ÞÍNUM VANDRÆÐUM,
DRENGUR MINN“
Níu dögum síðar afhenti Sicardo
Mike Telano kvartkíló af heroini
í þröngri hliðargötu um þrem götu-
lengdum frá klúbbnum sínum.
Hann borgaði klúbbframkvæmda-
stjóranum 5150 dollara fyrir hero-
inið, en þrír starfsfélagar Telanos
fylgdust með sölunni frá felustöð-
um í nágrenninum.
Ein einstök sala eiturlyfja er ekki
alltaf nægileg sönnun frammi fyrir
kviðdómi til þess að tryggja það,
að ákærði sé fundinn sekur, jafnvel
þótt þrjú opinber vitni geti stað-
fest, að þeir hafi verið sjónarvott-
ar að viðskiptunum. Eiturlyfja-
stofnunin þjálfar starfsmenn sína
í öllu því, er lýtur að meðhöndlun
mála fi'ammi fyrir dómstólum ekki
síður en í því að gæta þess, að eit-
urlyfjalögunum sé framfylgt. Þeim
er fyrirskipað, að þeir skuli hafa
það fyrir reglu að láta sér ekki
nægja að gera eiturlyfjakaup einu
sinni, heldur tvisvar eða þrisvar af
sama manninum, svo að, sá hinn
sami geti ekki haldið því fram í
réttinum, að menn Eiturlyfjastofn-
unarinnar hafi bara sviðsett þetta
til þess að fá hann dæmdan, alsak-
lausan manninn.
Telano gerði eiturlyfjakaup í
annað sinn, viku eftir að fyrstu
kaupin áttu sér stað, og Sicardo
kynnti hann fyrir manninum, sem
hann hafði fengið eiturlyfin frá. Þar
var um að ræða minni háttar
glæpamann, John Sudora að nafni.
Nokkrum dögum síðar kvartaði
Telano svo yfir því, að heroinið
væri mjög lélegt. Hann sagði Sic-
ardo, að hann gæti ekki átt frekari
viðskipti við hann ,nema hann fengi
betri vöru.
Sicardo lofaði að finna annað við-
skiptasamband. Og vinátta þeirra
dafnaði nú vel. Telano kynnti fé-
laga sinn, Johnny Gold, fyrir Sac-
ardo. Og Sicardo tók honum sem
hinum venjulega milligöngumanni,
sem skuggabaldur eins og Telano
væri líklegur til þess að hafa í þjón-
ustu sinni. Þeir félagarnir hertu
smám saman sóknina, þar eð þeir
voru sannfærðir um, að Sicardo
gæti komið þeim á spor þýðing-
armeiri glæpamanna í undirheim-
unum. Þeir lögðu áherzlu á það,
að þeir vildu fá algerlega ómengað
heroin í kílóatali. Þeir lofuðu að
greiða vel fyrir það, en þeir hótuðu
að halda burt frá Philadelphiu, ef
Sicardo gæti ekki orðið við beiðni
þeirra.
Að lokum fór svo, að fram-
kvæmdastjórinn lofaði að kynna
Telano fyrir þýðingarmiklum
manni í þessari grein. „Þessi ná-
ungi getur afgreitt til ykkar allt það
magn, sem þið kærið ykkur um,“
sagði hann. „Hann starfar með
klíku í New York.“ Gerðar voru
ráðstafanir til þess, að þeir skyldu
hitta hann í skrifstofu klúbbsins
nokkrum dögum síðar.