Úrval - 01.07.1972, Side 40
38
ÚRVAL
svolltinn spöl í viðbót, komum við að
sviðnum rústum þorps eins. Hiðeina,
sem eftir var af hreinsistöðinni, voru
tveir 5000 ferfeta steyptir grunnar,
nokkur undin málmrör, brunnur og
vátnsveita. Eftir stærð grunnanna að
dæma hefur verið þarna um að ræða
raunverulega heroinverksmiðju, sem
hefur getað framleitt mörg tonr. af
heroini á ári.
1 fyrstu framleiddu þessar hreinsi-
stöðvar aðallega lélegt purpurarautt
reykheroin (nr. 3), sem notað er af
asískum eiturlyfjaneytendum. Eitur-
lyfjasalarnir kunnu réttu tökin á sölu-
mennskunni, þvi að þeir fóru að selja
eiturlyf þetta i pökkum með litrikum
umbúðum með ýmsum vörumerkjum,
svo sem „Tveir drekar”, „Gullna
köngurlóin”, „Naut og hestur” og
jafnvel „Lucky strike”. En markað-
urinn fyrir fyrsta flokks hvitu heroin
óx hröðum skrefum, eftir þvi sem
eftirspurnin jókst meðal bandariskra
hermanna I Suður-Vietnam. Eig-
endum hreinsistöðvanna var það ljúft
að fullnægja eftirspurn þessari, og þvi
breyttu þeir um framleiðsluaðferðir
og fóru að framleiða fyrsta flokks
heroin nr. 4, 96% hreint. Siðustu tvö
árin hefur verið troðfullt af þessu
eiturlyfi alls staðar I Suður-Vietnam I
snotrum og áberandi umbúðum, litlum
plasthylkum sumum gagnsæjum,
öðrum I litum. í efri hluta hylkisins er
þetta fyndna vörumerki stimplað:
„Hollt nr. 4”, sem er sönnun þess, að
heroinframleiðendurnir hafa núna
einnig slna eigin plastverksmiðju til
framleiðslu umbúða.
Smyglarar og sendiboðar.
Klnversku eiturlyfjasalarnir dreifa
þessu banvæna dufti um gervalla Suð-
austur-Asiu og til annarra heimsálfa
með hjálp þriggja aðaldreifingar-
kerfa. Hið fyrsta nær yfir Bangkok,
Singapore og Hong Kong og þaðan fara
eiturlyfin til Taiwan (Formósu) eða
beint til Amerlku. Hið annað teygir sig
frá Saigon landleiðina til hafnarbæja
við Slamsflóa. Þaðan halda eiturlyfin
áfram feröinni til austurstrandar
Bandarikjanna (um Miðausturlönd og
Frakkland) eða til vesturstrandar-
innar (um Hong Kong og Singapore).
Þriöja dreifingarkerfið nær yfir leið-
ina beint til Taiwan og þaðan til
Vietnam og Bandarikjanna.
Mest af heroininu er flutt flugleiðis,
sumt af þvi I herflugvélum herliða inn-
fæddra á ýmsum stöðum, sumt I litlum
leiguflugvélum eða einkaflugvélum,
sem geta flogið mtö eiturlyfin til af-
skekktra flugbrauta. Stundum er
eiturlyfunum varpað I hafið. Þar er
um 60 punda heroinpakka að ræða,
sem vafðir eru I fimm lög af plastefni.
Síðan er pakkinn settur i málmtunnu
og tunnan innsigluð. Slðan er henni
varpað i hafið i fallhlif. Við tunnuna er
fest merkjabauja, og er þvi auðvelt að
finna þær með hjálp skipa og ná þeim.
Kinversku dreifingarkerfin tengjast
svo nýjum hóp eiturlyfjasala, er
heroin berst frá „gullna þríhyrn-
ingnum” suður til borga og bæja á
ströndinni. Þar er um að ræða
evrópska og ameríska flækinga og
ævintýramenn og fyrryerandi her-
menn og liðhlaupa úr Bandarikjaher.
Þessir vestrænu eiturlyfjasalar beina
nú slvaxandi magni heroins til út-
landa. Mjög mikið berst af heroini til
Suður-Vietnams um Tansonnhut-flug-
völlinn. I marz árið 1971 var þekktur
þingmaður I Suður-Vietnam handtek-
inn þar með næstum 10 pund af heroini
I fórum sinum. 1 vikunni áður hafði
flugfreyja hjá flugfélaginu Air Viet-
nam verið tekin þar með 20 pund I
fórum sinum. Hún var i flugvél, sem