Úrval - 01.07.1972, Blaðsíða 111
meistari sins eigin lifs, sem á sál sem
er hluti hinnar eilifu alheimssálar.
Sál mannsins er vinur hans, ef hann
ræöur yfir henni njeð anda sinum, en
sé maður ekki drottnari sinnar eigin
sálar, verður hún manns eigin óvinur.
Yoga er samræmi, ekki fyrir þann,
sem etur of mikið, né fyrir hinn, sem
etur of litið, ekki fyrir þann, sem of
litið sefur og heldur ekki fyrir þann,
sem sefur of mikið.
Hinir sýnilegu þættir eðlis mins eru
átta: jörð, vatn, eldur, loft, ljósvaki,
hugur, skynsemi og skilningur
sjálfsins. En hafinn yfir hið sýnilega
eöli mitt er minn ósýnilegi andi. Hann
er uppspretta lifs, sem alheimurinn
hefur byrjað útfrá.
Þvi að allir hlutir eru hverfulir, jafn-
vel heimar skaparans: þeir hverfa og
þeir snúa aftur. En sá, sem kemur til
min þarf ekki lengur að i'ara frá einum
dauða til annars.
Allur hinn sýnilegi alheimur kemur
frá hinni ósýnilegu veru minni. Allar
verur finna hvild sína I mér, en ég finn
ekki hvíld i þeim. .
Jafnvel þeir, sem af trúrækni dýrka
aðra guði vegna kærleikans, þeir
dýrka mig, þótt aðferðinni kunni að
vera ábótavant.
BÚDDHA:
Megi allar verur öðlast frið.
Vertu ekki gráðugur. Eigðu ekkert,
hafðu ekki ágirnd á neinu.
Sá, sem þekkir sannleikann, fer
framvegis eftir eigin leiðum og
öfundar engan.
Skynsamur maður lætur ekki orð
eða gerðir venjulegs fólks hafa áhrif á
sig.
Allt, sem við erum, er árangur þess,
sem við höfum hugsað.
Haltu þér frá þrasi og deilum.
Þeir, sem imynda sér sannleika i
ósannindum og sjá ósannindi i sann-
leikanum, komast aldrei að sann-
leikanum.
Allt, sem bundið er skilmálum,
leysist I sundur um siðir.
Vonbrigði eru óhjákvæmileg I
þessum heimi.
Eignir skapa áhyggjur, auðæfi geta
horfið skyndilega og gæfan er fljót aö
glepjast.
Regnið á eins auðvelt með að
komast I lekan kofa og ástríður I
óvarða sál.
Skiptu þér ekki af þvl, sem þér
kemur ekki við.
Þeir eru aldrei hamingjusamir, sem
lofa þá lastverðu og lasta þá lofsverðu.
Taminn hugur beizlar hamingjuna.
Hjálpið öðrum, en gleymið þó ekki
að hjálpa ykkur sjálfum.
Þú getur ekki frelsazt, nema með
eigin hjálp.
Við jarðneska fæðingu koma
fyrirheit elli og dauða.
Afvegaleidd hugsun er mesti óvinur
mannsins.
JESÚS KRISTUR
Það, sem þér viljið að aðrir menn
gjöri yður, það skuluð þér og þeim
gjöra.
Hver, sem er sannleikans megin,
heyrir rödd mina.
Sælir eru fátækir I anda, þvl að
þeirra er himnaríki. Sælir eru
syrgjendur, þvi að þeir munu huggaðir
verða. Sælir eru hógværir, þvi að þeir
munu landið erfa. Sælir eru þeir, sem
hungrar og þyrstir eftir réttlætinu, þvi
að þeir munu saddir verða. Sælir eru
miskunnsamir, því að þeim mun
miskunnað verða. Sælir eru hjarta-
hreinir, þvi að þeir munu Guð sjá.
áælir eru friðflytjendur, þvi að þeir
munu Guðs synir kallaðir verða. Sælir
eru þeir, sem ofsóttir verða fyrir