Úrval - 01.07.1972, Blaðsíða 48
46
ÚRVAL
Trader” frá Wilmington I Delaware-
fylki. Þaö sigldi hægt I áttina til flótta-
mannanna, en Antonio æpti og veifaði
bleyjunni i ákafa. Svo var skipsbjöll-
unum skyndilega hringt, og rauð að-
vörunarljós blikuðu. Og slöan stanzaði
olluskipið.
Þeir Antonio og Silvio reru flekanum
I áttina til skipsins og hættu svo að róa
I um 20 metra fjarlægö frá þvl. Rödd
hrópaði til þeirra á ensku: , ,Hver eruð
þiö?”
„Við erum Kúbubúar,” svaraöi
Antonio. „Okkur hefur tekizt aö
strjúka. Við höfum veriö 12 daga á
hafinu.”
Kaðli var nú kastað niður af þilfari
olluskipsins. Antonio greip hann og
togaöi I kaðalinn, þangað til flekinn
var kominn að skipshliðinni. Hinir
flóttamennirnir töluðu I belg og biðu
hásum röddum. Það var erfitt að
skilja, hvað þeir sögöu, þvl aö það virt-
ist ekkert samhengi I þvi. Þeir reyndu
llka að faðmast I fögnuði slnum. Að
nokkrurfi mlnútum liðnum var kaðal-
stigi látinn renna niður frá þilfarinu.
Veneranda greip I handlegg mannsins
slns og sagði: „Barnið.”
Hann tók Carlitös I faðm sér og
honum tókst að klöngrast upp stigann
með barnið, þótt ótrúlegt megi virðast.
Við borðstokkinn tók einn af sjómönn-
unum á móti barninu. Antonio var
hjálpaðyfir borðstokkinn, og svo hneig
hann niður örmagna á þilfarinu.
Veneranda horfði á eftir manni
slnum og barni hverfa yfir borðstokk-
inn. Hún var svo máttvana og dofin,
að henni fánnst sem hún væri varla
með meövitund. Hún gat þvl hvorki
fundið til gleði né sigurhróss. „Við
höfum sloppið,” tautaði hún við sjálfa
sig. „Við erum komiri þangað.”
r
1. Eftir hvern er sagan
David Copperfield?
2. Hvar fæddist Jón
Sigurðsson, forseti?
3. Hvaða kona hlaut
Oscarverðlaun 1972 fyrir
bezta leik I kvikmynd?
4. Hver er formaður
rithöfundasambands
lslands?
5. Hver er forseti
Egyptalands?
6. var Jósef, faðir Jesús
Krists látinn, er Jesús var
krossfestur?
V.
7. Eftir hvern er .sagan
Drekakyn?
8. Gengur tilhneiging til
að ganga I svefni I erfðir?
9. 1 hvaða Vesturlandi
eru flest morð framin
miðað við fólksfjölda?
10. Hver er a) for-
sætisráðherra Sovétríkj-
anna? b) forseti
Sovétrikjanna? d) for-
maður kommúnistaflokks
Sovétrlkjanna?
Svör á bls 77