Úrval - 01.07.1972, Page 106

Úrval - 01.07.1972, Page 106
104 ÍJRVAL Leiðin lá niður i móti, en bilnum var ekið eins hægt og hátiðlega og um lik- vagn væri að ræða. Þeir Lampredi og Moretti stóðu á fótbrettunum sinn hvorum megin. Audisio lá aftur á bak i hnipri á hægri frambrettinu. Hann sneri a föngunum og miðaði skam- byssu sinni stöðugt á þá. Eftir nokkur hundruð metra akstur var kröpp beygja á veginum. Handan beygjunnar skipaði Audisio, að numið skyldi staðar við hliðið á Villa Belmonte.. Klippt limgirðing teygði sig yfir steingarðinn, og ekki var hægt að sjá þangað frá þorpinu vegna beygjunnar. Audisio hoppaði niður af brettinu, skipaði þeim Mussolini og Clarettu að stiga Ut og benti þeim á hliðíð. Hinir stóðu á verði til þess að vera reiðubúnir að stöðva hverja þá, sem kynnu að koma þarna að úr annarri hvorri áttinni. ,,,t nafni Aðalbækistöðva Sjálfboða- liössveitar frelsisins hefur mér verið falið að fullnægja réttvisinni i nafni Itölsku þjóðarinnar,” sagði Audisio. Skyndilegt óp Clarettu yfirgnæfði orðhans: ,,Nei, Nei! Þér megið ekki gera þetta, þér megið það ekki!” æpti hún. „Vikið til hiiðar, ef þér viljið ekki deyja lika!” skipaði Audisio hvössum rómi. Svitinn rann niður andlit honum, þegar hann hleypti þrisvar af. Það komu engin skot. Byssan virkaöi ekki. Hann bölvaði og reif' skamm- byssuna úr hylkinu, sern fest var við belti hans. Það heyrðist smellur i gikknum, þegar hann ýtti á hann. En það var allt og sumt. Hann æpti til Moretti: „Réttu mér byssuna þina!” Moretti hljóp til hans og rétti honum aðra byssu. Bflstjórinn fann til velgju, þegar hann sá Mussolini hneppa frá sér grágræna einkennisjakkanum.,,Skjót- ið mig i brjóstið,” sagði hann skýrum rómi við kommúnistana. Claretta færði sig snögglega I áttina til hans til þess að ganga á milli. Siðan hleypti Audisio tvisvar af I þriggja feta fjarlægð frá Mussolini, fyrst fimm skotum.svofjórum. Fórnardýrin féllu bæði til jarðar, Claretta með kúlu i hjartastað og blóm, sem hún hafði tint, i annarri hendinni. En einræðis- herrann lifði enn, þótt fimm kúlur heföu hæft hann. Audisio skaut hann þá lokaskotinu beint I hjartastað. „SKEPNAN ER DAUÐ!” Þeir fluttu likin aftur til Milanó i vörubifreið ásamt likum 15 annarra framámanna fasista og hentu þeim á torgið Piazzale Loreto I skjóli myrkursins. Það var langt siðan þeir höfðu ákveðið þennan miskunnariausa verknað i hefndarskyni fyrir ætt- jarðarvinina 15, sem þar höfðu verið teknir af lifi af Þjóðverjum. Næsta dag var mannfjöldinn við ♦orgið aðeins forvitinn, uin leið og nann safnaðist I kringuin likin, sem lágu á gangstéttinni. Einhver hafði sett lítinn fána á stöng i hönd Mussolini og það var likt og hann héldi á veldis- sprota. Höfuð hans lá á hvitri blussu Clarettu. Fréttamenn stóðu áiengdar. Nokkrir ljósmyndarar hagræddu höfði Foringjans, svo að það sneri gegn sólinni, og studdu við kjálka hans með riffílhlaupi. Slðan greip grimmdaræöi frum- skógarins fólkið. Maður einn hljóp að liki Mussolini og sparkaði i höfuð þess. Fólk fór að dansa og viðhafa ýmis skripalæti i kringum likin. Kona ein skautfimm skotum i lik Mussolini, eitt fyrir hvern af sonunum, sein hún hafði misst i striði Foringjans. önnur reif af honum skyrtuna, kveikti i henni og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.