Úrval - 01.07.1972, Qupperneq 116

Úrval - 01.07.1972, Qupperneq 116
114 ÚRVAL uppi á hásléttu Asíu, og ókum sfðan niður eftir Changanbreiðgötu, en þar eru sex akbrautir. Hún var samt alveg tóm, og við geystumst áfram i algerri þögn. Við gatnamót tók ég eftir þvi, að hvar sem fólk kynni að hafa safnazt saman til þess að ganga yfir götu, höfðu hermenn stöðvað það a.m.k. um 140metrum frá gatnamótunum til þess að koma i veg fyrir, að það liti út sem fólk þetta hefði safnazt saman til þess að fagna komu forsetans. Borgin var tóm. Sú staðreynd hafði sterk áhrif á mig, þvi að nýlega hafði ég skoðað mjög gaumgæfilega ljósmyndir, sem sýndu komu Haile Selassie Eþiópiukeisara til borgarinnar i október siðastliðnum, en þá hafði a.m.k. hálf milljón dansandi og hrópandi borgarbúa safnazt saman meðfram götunum ti! þess að hylla hann. Þegar hin þögla bilalest okkar stanzaði, bárum við saman bækur okkar og komumst að þeirri niður- stöðu, að þessi byrjun gæti ekki boðað neitt gott. Þeir okkar, sem þekktu Austurlönd og ibúa þeirra og mikilvægi þess að allt væri slétt og fellt á yfirborðinu, gerðu sér grein fyrir þvi, að leiðtogar Kina vildu gefa til kynna strax i upphafi, að þeir ætluðu að meðhöndla Nixon forseta á mjög formfastan hátt, en alls ekki að auðsýna honum hlýju né uppörvun. Þegar við spurðum túlk að þvi, hvort honum fyndist ekki, að þetta væru kuldalegar móttökur, svaraði hann: ,,Nú, hvers vegna? Forseti ykkar baðst leyfis til þess að mega koma hingað, og það leyfi var veitt.” Fréttamaður einn spurði þá hæðnislega: „jívenær eigum við að falla á kné?” Kinverjanum fannst þetta alls ekki fyndin athugasemd. Það yrði ekki um neitt knéfall Bandarikjamanna að ræða. Það erf- iða vandamál hafði verið útkljáð árið 1859, þegar bandariski fulltrúinn John E. Ward steig fæti sínum inn I Peking. Kinverski keisarinn krafðist, þess, að Ward sýndi honum tilhlýðilega virðingu með þvi að falla á kné. Yrði Ward við þeirri kröfu, neyddist hann til að falla á kné fyrir keisaranum þrisvar sinnum og berja enninu við gólfið þrisvar sinnum I hvert skipti. Ward aftók að verða við þessari kröfu, og olli þetta gagnkvæmri reiði, og virtist engin lausn vera möguleg. Um hrið leit einna helzt út sem Ward yrði að halda heim án þess að hafa gert nokkurn samning. En einhver, sem hafði náin tengsl við kínversku hirðina, stakk upp á góðri lausn þessa vandamáls. Hann stakk upp á þvi, að Ward þyrfti ekki að krjúpa til fulls nf leggjast næstum i gólfið og hann þyrft ekki heldur að lemja enninu i gólfið, ei hann yrði þó að sýna viðurteknun siðvenjum þá tillitssemi að snertt a.m.k. gólfið með öðru hnénu. Ward neitaði þvi einnig, og hann hitti þvi aldrei keisarann. En þá fann annar frá hirð keisarans lausn á vandanum. Hann skýrði keisaranum frá þvi, að Bandarikjamenn væru svo óheflaðir i allri framkomu og kynnu svo litið til ýmissa siðvenja, að þeir gætu blátt áfram ekki skilið siðareglur, sem giltu i milliríkja- samskiptum. Þessa ástæðu skildi keisarinn. Og samningur var gerður. En það var ekki hægt að undirrita hann i Peking, þvi að Bandarikja- maðurinn hafði ekki knéfallið fyrir keisaranum og þvi ekki sýnt honum tilhlýðilega virðingu. Kviði minn, hvað snerti viðtökur forsetans i Kina, jókst. siðdegis þennan dag, meðan ég beið i kuldanum fyrir utan Hina miklu þjóðarhöll og beið þess, að Nixon forseti og Chou for-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152
Qupperneq 153
Qupperneq 154
Qupperneq 155
Qupperneq 156
Qupperneq 157
Qupperneq 158
Qupperneq 159
Qupperneq 160
Qupperneq 161
Qupperneq 162
Qupperneq 163
Qupperneq 164

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.