Úrval - 01.11.1974, Qupperneq 32
30
ÚRVAL
ferð til að fylgjast með merktum
refum. Veiddir eru refir og komið
fyrir í þeim tækjum, sem geta sent
upplýsingar um sjúkdómseinkenni
til jarðstöðva og flugvéla. Á þennan
hátt er hægt að kortleggja flakk
refsins á svæðinu. í Sviss eru skraut
legar plastagnir settar saman við
fóðrið, sem dreift er út handa ref-
unum, svo rekja megi slóð þeirra
með því að skoða refaskítinn. í
Hollandi er sett hálsband á refina
með innbyggðum útvarpssendi, sem
gefur til kynna hvar þeir eru hverju
sinni. Eftir því, sem menn fá þann-
ig meiri og meiri vitneskju um
hegðunarhætti refsins, hvar hann
flækist, hvað hann étur og hvað
hann tekur sér fyrir —- eru miklu
meiri líkur til þess að hægt sé að
ná yfirhöndinni yfir þeim sjúkdómi,
sem hann dreifir.
En það er mjög mikilsvert, að al-
menningur taki þátt í baráttunni
gegn hundaæði. Sérfræðingar al-
heimsheilsustöðvarinnar hvetja alla
hunda- og kattaeigendur, sérstak-
lega á þeim svæðum, þar sem hunda
æði er yfirvofandi hætta, til að bólu
setja dýr sín með vissu millibili.
Bóluefni við hundaæði eru nú mörg,
og allir dýralæknar vita, hve þétt
þarf að bólusetja. Venjulega er tal-
ið að bólusetja þurfi hunda þriðja
hvert ár, en ketti árlega. í Suður-
Jótlandi er fyrirskipað með lögum,
að allir hundar skuli bólusettir
þriðja hvert ár og á Grænlandi, þar
sem hundaæði er mjög útbreiddur
sjúkdómur meðal dráttarhundanna,
á að bólusetja alla hvolpa, áður en
þeir verða níu mánaða gamlir.
Nytjadýr í landbúnaði eru í mik-
illi hættu fyrir refabiti. Refafar-
aldurinn í Evrópu hefur þegar kost-
að 5000 hesta, kýr og kindur lífið.
Þetta mætti varast, ef bændur al-
mennt á þeim svæðum, þar sem
hundaæði geysar, létu bólusetja bú-
pening sinn í tæka tíð. Bólusetning-
in er næstum 100% örugg og veld-
ur dýrunum engum óþægindum.
Það er einmitt mesta framförin í
herferðinni gegn hundaæði, að nú
er bóluefnið svo árangursríkt, að
þrjár, næstum sársaukalausar bólu-
setningar, veita fulla vernd. Bólu-
efnið var fundið upp við Vistav
Institute í Fíladelfíu og það hefur nú
verið búið til í efnafræðirannsókn-
arstofum í Frakklandi og Banda-
ríkjunum í rannsóknarskyni. Þvert
móti eldri gerðum bóluefnis er mjög
lítið af vefjaefnum í þessu bóluefni
og hættan á ofnæmi er mjög lítil.
Þar sem bóluefnið hefur ekki
aukaverkanir, má segja að hægt sé
að fyrirbyggja hundaæði. Með öðr-
um orðum, að koma upp ónæmi hjá
mönnum, sem gætu orðið fyrir
hundaæðissmitun. í Evrópu, Asíu og
Ameríku hafa þegar mörg hundruð
dýralæknaefni verið bólusett, og
komið í ljós, að oft er ein inngjöf
nóg til að koma af stað mótefnis-
myndun í líkamanum, sem er mörg-
um sinnum meiri en nauðsynleg er.
Bólusetningin er fremur dýr, því
það tekur langan tíma að framleiða
bóluefnið — sex vikur. En bólu
setning af þessu tagi er aldrei of
dýr fyrir fólk, sem á það á hættu
að smitast af jafn skelfilegum og
banvænum sjúkdómi og hundaæði.