Úrval - 01.11.1974, Side 63
ÞANNIG UPPGÖTVAÐIST . . .
61
raist. Pappírinn var ögn þynnri en
sá, sem notaður var í ófalsaða
seðla, en þar fyrir utan hafði hann
bara verið heppinn. I blaðinu stóð
svart á hvítu: „Þessi fölsun er mjög
vel heppnuð ‘ Og síðar: „Myndin
af Jackson forseta er mjög vel gerð,
þó henni sé nokkuð ábótavant
knngum augun og megnið af skygg-
ingunni undir neðri vör vanti. Inn-
sigli Þjóðbankans er vel stælt, en
í stjörnunum eru hvítir punktar."
Og um baksíðuna stóð þetta: „Tígla-
mynstrið er mjög vel gert.“ Síðan
kom hin afdrifaríka frásögn af litla
revkháfnum, sem vantaði og upp-
lýsingar um, að þessi ákveðna föls-
un hefði í fyrsta sinn komið fram
6. september 3 972 í Ziirich og síðar
í V.-Þýzkalandi og Austurríki.
Contrefacons et Falsifications
(falsaðir peningar og verðbréf), er
eitt áhrifamesta vopnið í linnulausu
striðinu við peningafalsara. í októ-
ber í fyrra var haldið upp á 50 ára
afmæli þessarar einstæðu útgáfu,
og þá voru margir háttsettir lög-
reglumenn frá mörgum löndum
samankomnir í aðalstöðvum Inter-
poi í Parísarútborginni Saint-
Cloud. Meðal heiðursgestanna var
hoilenski útgefandinn að C og F,
hinn geðþekki málamaður Leo Th.
Keesing, en það var faðir hans, sem
hóf útgáfu þtssa rits árið 1923. Þeg-
ar lögreglan reyndi fyrir þann tíma
aö bera saman falsanir, sem nýlega
höfðu uppgötvast, og þær, sem eldri
voru, var óhjákvæmilegt að vinna
effir eins konar dreifibréfi, sem
sent var út með löngu millibili. En
þetta var vaxið mönnum yfir höf-
uð, og þess vegna sneri lögreglan í
Amsterdam sér til prentarans og
útgefandans Isaac Keesing, sem
hafði fundið upp og fengið einka-
leyfi á skýrslukerfi með lausblöð-
um, sem gerðu mögulegt að halda
nákvæmar skýrslur með því að
færa alltaf inn nýtt og nýtt, þar
sem það átti við. Eftir nokkurra
daga þrotlausa vinnu kom hann
með uppkast að C og F, sem með
snjöllu innsetningar- og skráning-
arkerfinu gerir mögulegt að bera
saman og bæta stöðugt inn í í
miklum flýti. Þetta kerfi var þegar
í stað viðurkennt hjá Internationale
Kriminalpolizeiliche Kommission í
Ví.r, en sú stofnun var fyrirrennari
Imerpol. í dag getur C og F státað
sig af því að eiga að minnsta kosti
einn áskrifanda í hverju landi
heims.
Baunverulega er um að ræða út-
gáíu á blöðum sem öll eru af stærð-
inni A 4 og öll eiga saman. Deild 1
fjallar um falska mynt, peninga-
seðla, ávísanir og önnur verðbréf
og lýsir á frönsku og ensku í smá-
atriðum öllu því, sem aflaga hefur
gengið við fölsunina Annar hluti,
sem er prentaður á frönsku, ensku
og þýsku, er lýsing á öllum þeim
peningum og myntum, sem notaðar
eru í heiminum. Þar eru myndir af
nýjum myntum og nýjum seðlum
af öilu verðgildi, frá öllum löndum,
án nokkurra undantekninga, og
sagt frá því helsta, sem þekkja má
verðmæti á, stærð, litum, vatns-
merkjum, þyngd og efnasamsetn-
ingu. Ferðaávísanir eru einnig
þarna með.
Annan hluta geta allir fengið, en
þeir sem fá fyrsta hluta, eru mjög